Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1933, Page 41

Eimreiðin - 01.10.1933, Page 41
eimreiðin HRÍMSKÓGUR 391 iónum, fyllir allan geiminn, er þessar miljónir ískristalla snert- ast á öldum lofts og ljóss. Tunglið veður í skýjum. Annað veifið er lundurinn rökkur- blátt draumaland. Þá slokkna blysin öll. En bjöllurnar klingja. Og tónn þeirra er kvöldblár og svalur. Að vörmu spori kemur tunglið fram á ný og kveikir öll blysin. Og bjöllurnar klingja. En nú er tónn þeirra ljósleiftrandi og fagnaðarþrunginn. Lundurinn allur logar og syngur. Hér mætast himinn og jörð í sál vetrarins, og raddir þeirra hljóma í silfurbjöllum ískrist- allanna með undursamlegu ómasamræmi. Og sál mín syngur með. Bergmálar við himni og jörð. Rennur saman við sál vetrarins. Og hrímfegurðin og ísrósavefnaður vetrarins, sem aetíð hefur verið mér ímynd hinnar andvana fegurðar, rís nú upp frá dauðum. Hún er þrungin af lífi og fegurð, og blikar °S syngur og hlær djúpt inni í mínu eigin hjarta: Lífið er dásamlegt. Lífið er í öllu. Lífið er eilíft og æ hið sama í öllum myndum. í sólbliki sumarsins og ískristöllum vetrarins! Hrímgullnar greinar hvítra birkitrjáa vagga nú sál vetrarins í örmum sínum og seiða til sín að utan hið frost- tæra kristallslíf fegurðarinnar. En að 4—5 mánuðum liðnum lifnar þessi sami skógur innan frá og laufgast. Þá streymir safi og sefja úr móðurbrjóstum jarðarinnar um hverja frumu- bjarkarinnar út í yztu brumknappa, svo skeljarnar bresta með svolitlum smelli, og ungir grænvoðungar brosa fagnandi við bjartri vorsólinni. Á örskömmum tíma verður lundurinn þá að guðsgrænu æfintýri, og sólþyrst laufið, ilmþrungið og yndislegt, drekkur í sig endurfædda kristallsfegurð vetrarins í drjúpandi döggum úr djúpum skálum vornæturinnar. Þannig tekur hið eilífa líf náttúrunnar höndum saman í sí- íeldri hringrás. Sálir vetrar og sumars fallast í faðma. Og sæluþrunginn andardráttur þeirra er ljóðaljóð lífsins og íegurðarinnar! — — — Hugur minn var hljóður og kyrr, eins og lognsvalt, heið- skírt vetrarkvöldið — einn stiltur strengur, er söng í samræmi við silfurbjöllurnar. Sál mín var tær og skír, eins og ískrist- allarnir, og klukknakliðurinn gekk í rauðum bylgjum gegn um blóð mitt. Ég rann allur saman við þessa ójarðnesku undra- íegurð — sál mín og vitund. Mér fanst ég svífa hátt og langt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.