Eimreiðin - 01.10.1933, Síða 50
400
FRÁ HNITBJÖRGUM
EIMREIÐIN
hægri. En hann finnur ekkert, nema líkklæðin, því sál hinnar
framliðnu er horfin. Konulíkið er aðeins sýnt með línum á
myndinni, og gerir það myndina enn þá átakanlegri. And-
stæðan milli lífsgleðinnar í danzinum að baki syrgjandanum
og tómleikans framundan í vonlausri leitinni að ástvininum
horfna, þar sem ekkert er fyrir nema líkklæðin og auðn
moldarinnar, er svo sterk, að vart verður með orðum lýst.
Vfir myndinni hvílir þögul tign. Væri óskandi að hún ætti
eftir að verða stækkuð og höggvin í hvítan marmara.
Fyrsti landnámsmaður íslands er líkan af keltneskum munk,
papa, sem heldur krossi Krists á lofti og blessar með hægri
hendi yfir Island, en á endum krossins eru greiptir landvætt-
irnir fjórir: risinn, drekinn, gammurinn og nautið. E. J. hefur
fundið svo mikla líkingu með þessum táknum hinna heiðnu
landvætta og hinna kristnu merkja guðspjallamannanna fjög-
urra, sem voru engill, ljón, fugl og fjórða merkið hið sama,
að. hann álítur hvorttveggja táknin af sameiginlegri rót. Það
er talið að samskonar tákn hafi verið til hjá Assýríumönnum
hinum fornu, og að líkindum eru þau til frá miklu eldri tímum.
Á stalli líkneskisins, undir upphleyptri mynd af landinu, standa
þessi orð á forn-gaelisku: »Guð blessi þessa jörð«.
Ef Einar Jónsson hefði lifað með stærri þjóðum, mundi að
líkindum vera risin voldug bygging utan um listaverk hans,
þau sjálf stækkuð og komin í marmara, mörg hver, og lista-
maðurinn með heila hirð nemenda og aðstoðarmanna um sig,
líkt og Thorvaldsen hafði á sínum tíma og þeir Vigeland og
Epstein hafa nú. Þessu er ekki til að dreifa. Einar hefur
sjálfur kosið að lifa með sinni eigin þjóð. Hann vinnur einn
að mótun mynda sinna og stækkun, hefur lítið um aðstoðar-
menn, vinnur flest grófari verkin, í sambandi við starf sitt,
sjálfur. Og hann vinnur í sífellu að nýrri sköpun hug-
mynda og heggur þær í steininn. Fátæk smáþjóð hefur búið
svo að honum sem hún má, og hann virðist una hag sínum
vel í ríki sinna eigin hugmynda. En það eru ekki allir, sem
vita enn til fulls, hvílíkan auð hann hefur fært þjóðinni með
verkum sínum, sem vita, að hann er alt af að bæta við þann
auð, að hann er að koma á fót uppeldisstofnun og skóla fyrir
íslenzka kynslóð nú og í framtíðinni. Að þeim skóla er öllum
heimill aðgangur. Og það fer ekki hjá því, að þeir sem sækja
þann skóla með áhuga, koma þaðan vitrari og betri.
Sv. S.