Eimreiðin - 01.10.1933, Qupperneq 57
ElMREIÐIN
ESPERANTÓ OQ ENSKA
407
v®ru staðreyndir, sem hann væri að andmæla. Nokkuð svipuð
eru ummæli greinarhöf., er hann fyrir fram neitar að viðurkenna
uokkur rit á esperantó, hvort heldur þýdd eða frumsamin, sem
h°num yrði bent á. En þrátt fyrir hina skilyrðislausu afneitun
9reinarhöf. verður þó ekki fram hjá því komist, að bókmentir
Seu til á esperantó. Að vísu eru þær hvorki miklar né fjölskrúð-
u9ar, enn sem komið er, í samanburði við bókmentir stór-
Þióðanna, svo sem heldur er ekki við að búast. En það eru
kó ekki allfá af hinum klassisku ritum heimsbókmentanna,
sem búið er að þýða á esperantó. Sumar af þessum þýðing-
Um þykja taka fram þýðingum sömu rita á önnur mál. Er
tað einkum þakkað því, að esperantó er sveigjanlegri heldur
en bjóðtungurnar og ekki steypt í eins fast mót, svo að hún
9etur betur Iagað sig eftir frumritinu, á hvaða máli sem það
er> og náð öllum dráttum þess. Að slíka þýðingu eigi síður
aó telja til bókmenta heldur en þýðingar á þjóðtungurnar,
sem ef til vill gefa ekki eins skýra mynd af frumritinu, það
Vlrðist harla kyplegt. Það hafa líka verið gefin út á esperantó
synishornasöfn úr bókmentum ýmsra þjóða, svo sem Kata-
°niumanna, Flæmingja, Ungverja, Pólverja, Lítóvíumanna o.
s’ ^rvM í þýðingum eftir samlanda höfundanna. Það er erfitt
skilja, hvers vegna það ætti endilega að vera betra að
Vnnast þessum bókmentum í enskum þýðingum eftir Eng-
endinga eða Ameríkumenn.
En svo eru loks enn ein not, sem hafa má af esperantó
°9 ekki er minst um vert, þó að greinarhöf. ef til vill vilji
^ eins leggja þau á borð við notin af tafli og spilaþrautum.
au leiða af byggingu málsins sjálfs og eru því ekki komin
yndir útbreiðslu þess. Með því að læra esperantó fá menn
a9ætt yfirlit um aðalatriði almennrar málfræði. í esperantó-
málfraeðinni eru aðeins fáar reglur og frá þeim eru engar
Un,dantekningar. ^ær innprentast því miklu betur heldur en
a ‘ræðireglur í öðrum málum, sem eru háðar sífeldum und-
aníekningum, og verða því miklu margbrotnari og óljósari.
,a eru því ýmsir, sem halda því fram, og það virðist ekkert
ennilegt, að esperantónám hjálpi mönnum mikið við mál-
inám í öðrum málum á eftir, og jafnvel í sjálfu móður-
lnu> auk þess sem það kynnir mönnum töluvert af orð-