Eimreiðin - 01.10.1933, Síða 58
408 ESPERANTÓ OQ ENSKA eimreiðin
stofnum, sem finnast í mörgum málum, einkum rómönskum
málum og ensku. I skýrslu brezku stjórnarinnar til Þjóða-
bandalagsins um esperantókenslu, sem prentuð er sem fylgi-
skjal með áðurnefndri skýrslu Þjóðabandalagsins, segir m. a.:
»Nám þess (þ. e. esperantómálsins) hjálpar sennilega ný-
græðingnum að rata í gegnum klungur og foksanda ensku
málfræðinnar. Það hefur jafnvel verið stungið upp á að læra
esperantó sem dautt mál aðeins sem meðal fil þess að læra
málfræði. En sú aðferð mundi einmitt útiloka það, sem virðist
aðallega laða börnin að esperantó, en það er, hve auðvelt
er að ná valdi á henni munnlega« 0- Og í skýrslu lettnesku
stjórnarinnar er tekið svo til orða: »Við nám esperantó-
málsins kynnist nemandinn byggingu indó-evrópsku málanna.
Með því að esperantó er rökvíst mál, þá stuðlar hún að því að
þroska rökrétta hugsun, jafnvel enn meir heldur en latínan*2)-
Af grein Sn. ]. gætu menn haldið, að esperantóhreyfingiu
hér sé miklu öflugri heldur en annarsstaðar, þar sem hann
segir, að hún sé „búin að gera okkur að viðundri og athlæS1 2
í augum annara þjóða vegna þess, hve blöðin hafa af skdn-
ingslílilli vatnsgrautarmiskunsemi leyft trúboðunum greiðan
aðgang að dálkum sínum“. Það má nú segja, að aðrar þjóðu
hafi nánar gætur á blöðunum okkar, ef þær fara að reka
augun í þær fáu fréttaklausur og greinar um esperantó, sem
birzt hafa í íslenzkum blöðum, og það er furðulegt, að nokkur
skuli geta haldið því fram, að þær hafi vakið nokkra athygl'
meðal »annara þjóða*. Eg býst ekki einu sinni við, að gr610
Sn. ]. í Eimreiðinni muni gera það, og er þó margt kátlegt i
henni. Þótt greinarnar um esperantó hefðu verið margfalt fleir1
og esperantóhreyfingin hér miklu öflugri, þá er engin hætta
á, að það hefði vakið nokkurt athlægi meðal annara þjóða-
Þjóðabandaiagið hefði þá átt að verða til athlægis fyrir skýrsl'
una um esperantóhreyfinguna, sem áður er nefnd, og allaf
ríkisstjórnirnar, sem söfnuðu efni í hana. Og skyldu himr
miklu sýnishornamarkaðir Norðurálfunnar, svo sem markað-
irnir í Leipzig, Frankfurt a. M., París, Lyon og víðar, er ar-
1) L’Esperanto comme Iangue auxiliaire internationale, bls. 39.
2) Sama rit, bls. 17.