Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1933, Page 61

Eimreiðin - 01.10.1933, Page 61
eimreiðin SAMBANDSLÖGIN FIMTÁN ÁRA 411 betri og heillavænlegri en hún hafði áður verið. Mér þykir hlíða að tilgreina hér ummæli annars af riturum dönsku sarnninganefndarinnar, Funders lögfræðings, í niðurlagsorð- Ufn greinar, er hann ritaði um frumvarpið í lögfræðitímarit danskt, sumarið 1918. Býst ég við að þau lýsi nokkuð vel af- stöðu margra Dana til málsins. Funder kemst þannig að orði: >,Að lokum skal það tekið fram um frumvarpið í heild sinni, að •nargir Danir munu að vísu harma það, að Island verður eigi lengur Lluti af danska ríkinu, er sambandslögin eru gengin í gildi, heldur sjálf- staett ríki með eigin fána. En þareð tæplega nokkur Dani myndi vilja 'áta bæla sjálfstæðiskröfur íslendinga niður með valdi, var eigi annars kostur en að reyna að ná samkomulagi um samning um stöðu landsins, með því að fullveldisviðurkenningin og sérfáninn voru orðin ófrá- Mikjanleg skilyrði af íslendinga hálfu, þá hlaut flesfum þeim Dönum, er nokkuð þektu til íslenzkra mála, að hafa verið það ljóst, að engir samn- 'ngar gátu náðst við ísland, er fólu í sér ríkiseiningu. Það hefur verið sagt, að ef ríkiseiningunni eigi yrði haldið, þá ætti Danmörk heldur að kjósa algerðan skilnað, en slíkt getur varla verið mælt í alvöru. Það er skkert særandi fyrir þjóðernistilfinningu Dana í því, að Danmörk gerist jafningi íslands í ríkjasambandi eins og hér er til stofnað, eða þó að reYnt sé með þeim hætti að halda við sambandi landanna á nýjum grundvelli. Vera má að sú tilraun verði aðeins áfangi á leiðinni til al- Serðs skilnaðar, en hitt er einnig hugsanlegt, að íslendingar verði á- Uæ9ðir með frelsi það, sem landinu er veitt í sambandslögunum, og að af því spretti vilji til samvinnu við Danmörku. Danir óska vafalaust sam- vinnu við ísland, og ýms atriði hins nýja skipulags, svo sem hinn gagn- kvaemi ríkisborgararéttur, sambandsnefndin, og stofnun danskrar stjórnar- skrifstofu í Reykjavík, virðist í reyndinni munu styrkja slíka raunhæfa samvinnu, sem skapa mun sterkari tengsl milli landanna en nokkur lög skapa. Það er því eigi með öllu ómögulegt, að þeirri ánægju, sem ís- Isnd aldrei hefur getað fundið, meðan það var hluti danska ríkisins, verði náð af beggja hálfu í hinu nýja dansk-íslenzka ríkjasambandi". Með þessum huga mælti þessi maður með frumvarpinu við bnda sína, og einnig hér á landi heyrðust raddir um það, °S óskir um það, að sambandslögin myndi leiða til aukinnar, raunhæfrar samvinnu milli landanna, er yrði báðum þjóðun- Ulu til góðs. Þær óskir áttu vafalaust drjúgan þátt í því, að samkomulag fékst í samninganefndinni og að frumvarpið náði ^rarn að ganga. Eins atriðis er enn vert að geta. Forsaga sambandslaganna er órituð enn, og sum atriði hennar í þoku, enda hafa lík-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.