Eimreiðin - 01.10.1933, Side 68
418
SAMBANDSLÖGIN FIMTÁN ÁRA
EIMREIÐIN
það var verra að vera íslendingur. Ég hef eigi dvalið neitt
að ráði í Danmörku síðan 1918 og get því eigi um þetta
dæmt af eigin raun, en mér er sagt að mikil breyting sé nú
á þessu orðin til hins betra.
Að öðru leyti verður það varla sagt að vonir þær hafi ræzt,.
er menn gerðu sér um nánara samband Islands og Dan-
merkur, er af sambandslögunum myndi Ieiða. Þvert á móti.
ísland og Danmörk hafa í flestum efnum fjarlægst síðan 1918.
Danmörk var öldum saman eina viðskiftaland Islands, og
langa stund eftir að verzlun Islands var gefin frjáls, 1854,
var nálega öll verzlun þess við önnur lönd í höndum Dana
búsettra í Danmörku, selstöðukaupmannanna og hinna dönsku
umboðsmanna íslenzkra kaupmanna. Hélzt það fram yfir alda-
mót, og bein verzlunarviðskifti voru auk þess miklu meiri við
Danmörku en nokkurt land annað. Arið 1900 voru 48 °/o af
verzlun Islands við önnur lönd verzlun við Danmörku. Þegar
ísland komst í ritsímasamband við umheiminn og íslenzka
verzlunarstéttin tók að eflast, fór hlutdeild Dana í verzlun
landsins að minka. 1913, síðasta árið fyrir ófriðinn, var hún
komin niður í 38,2 °/o. A ófriðarárunum röskuðust viðskiftin,
eins og við var að búast, en leituðu að nokkru leyti aftur í
sinn forna farveg eftir ófriðinn. 1923 varð hlutdeild Dan-
merkur í verzlun íslands 27,3 °/o. Síðan hefur hún minkað
jafnt og þétt, var 17,2 °/o 1930 og 16,7 o/o 1931, síðasta árið
sem skýrslur ná til. Það er eðlilegt og óhjákvæmilegt, að lengi
eimi eftir af jafn nánu og gömlu viðskiftasambandi og áður var
milli íslands og Danmerkur, og þegar þess er gætt, verður
að segja að verzlunin milli Iandanna hefur gengið furðu fljótt
saman síðan 1913. Og þegar til þess er litið, hvernig þessari
verzlun nú er komið, þá sýnast allar líkur vera til þess, að
hún eigi fyrir höndum að ganga enn meir saman. Verzlunin
er nú að langmestu leyti innflutningur frá Danmörku. 1931
fluttu Danir vörur hingað fyrir 13 milj. 52 þús. kr., en keyptu
hér vörur fyrir 2 milj. 687 þús. kr. Verzlunarjöfnuður land-
anna er því Dönum í vil um 10—11 milj. kr. Nú er sú stefna
uppi að jafna sem mest verzlunina milli einstakra landa, og
auk þess mun mikið af innflutningi Dana hingað vera >transit«
vörur, sem Islendingum sennilega lærist að kaupa beint fra