Eimreiðin - 01.10.1933, Síða 91
eimreidin
HVAÐ SEQ]A STJORNURNAR
441
Sólmyrkvi er aðfaranótt 14. febr. Er hann í Vatnsbera.
Má að öllum líkindum búast við jarðskjálfta á eftir honum.
Mun sólmyrkvi þessi hafa sérstaklega áhrif í Rússlandi, Sví-
bjóðu, Prússlandi og Hamborg. Einn eða fleiri þeirra manna,
sem eru af háum stigum, stjórnarherrar, ráðendur bæjar-
stjórna, yfirmenn fyrirtækja o. þ. h. munu deyja. Ahrif þessa
sólmyrkva munu vara nokkuð lengi, og á vissum tímum munu
verða meiri vindar og stormar en venjulega, hættulegir mönn-
um. Munu þau að líkindum mest áberandi í Austurlöndum,
sem myrkvinn er sýnilegur, en þó munu hin áður um-
9etnu lönd hér í álfu verða vör áhrifanna að meira eða
minna Ieyti.
Tímabilið frá 21. marz til 22. júní 1934.
Nú hefst stjörnuárið. Vorjafndægrin eru áhrifaríkustu og
býðingarmestu timamót ársins.
Heildarafstaða þjóðarinnar mun á þessu tímabili ekki verða
Sem æskilegust. Jafnvel þó að sólin sé í raun réttri sterkust,
t»á hefur hún þó veikar afstöður, ekki góðar. Marz og Úran
hafa hér einnig mikil áhrif og eru yfir höfuð illa settir. —
Ándstaða mun verða áberandi á milli yfirráðenda (atvinnu-
fVrirtækja) og þeirra, sem eru undirgefnir, og heilsufar mun
verða fyrir neðan meðallag. Friðurinn mun ekki verða með
°hu ríkjandi. Órói nokkur er sýnilegur. Ástandið mun batna
efl»r 12. júní.
Peninga- og fjármálin munu ekki færast í betri áttina á
hessu tímabili, los mun verða áberandi, því afstöðurnar eru
Vfir höfuð ekki góðar. Þó mun góð afstaða frá Venusi jafna
heldur upp, svo örðugleikarnir verða ekki eins áberandi. Mun
aðstoð koma frá þeim, sem hafa yfir öðrum að segja og
föggjöfinni.
Samgöngur munu verða fyrir ýmsum hindrunum, bæði af
'nnanaðkomandi og utanaðkomandi ástæðum. Bezt fyrir bif-
reiðarstjóra að fara gætilega. Heldur mun draga úr bóka-
ul9áfu og prentun. Virðist heldur létta, þegar kemur fram í júní.
Tímabil þetta er einnig fremur örðugt fyrir bændur og
endbúnað. Andstaða gegn stjórninni er fremur veik, einkum
am í júní. — Utanríkismálin verða örðug viðfangs. Örðug-