Eimreiðin - 01.01.1948, Page 16
EIMREIÐIN
Við Þjóðveginn.
16. marz 1948.
EINRÆÐIÐ FÆRIST í AUKANA.
Kverkatak þaö, sem heimskreppan hefur tekið þjóðir
Evrópu, hefur einnig náð íslandi. Veltiárin eru orðin að
harðæri, og mögru kýrnar hans Faraós hafa upp etið þxr
feitu. Gjaldeyrisskortur og óhagstæður greiðslujöfnuður
þjarma að þjóðinni. Ef til vill boðar það einhvern bata fram-
undan, að síldin hefur verið oss eftirlát, kom, eins og óvæntur
gestur, úr Hvalfirðinum, rétt við hliðina á höfuðborginni,
og lét moka sér þar upp í milljón mála tali. Og þrátt fyrir
gífurlegan kostnað við flutning og framleiðslu þessarar út-
flutningsvöru, hefur þó reyndin orðið sú, að verzlunarjöfu-
uður vor varð hagstæður á fyrsta mánuði þessa árs, en þ($
hefur hann ekki orðið fyrr um langt skeið.
Krumlan kreppist eigi að síður fastar og fastar um ísland,
sem um ríkin fyrir austan það, í Evrópu. Að vísu erum ver
ef til vill betur settir fyrir hramminum úr austri en grann-
þjóðir vorar þær næstu í Evrópu. fsland er umflotin ey
langt í vestri, í raun og veni á vesturhveli jarðar. Þessi leSa
landsins hefur bjargað frelsi þess í undanförnum heims-
styrjöldum. Hvort svo gæfusamlega tekst til enn, ef wý
heimsstyrjöld skellur á áður en varir, mun framtíðin leiðu
í Ijós. En hlutleysi kemur oss ekki að haldi, og andvaráleys'1
leiðir til glötunar. Þetta ætti oss að hafa lærzt af langri o9
viðburðaríkri sögu vorrar eigin þjóðar — og þá ekki sízt af
sögu síðustu ára.
Skuggi einræðis leitar áfram í vestur, út að ströndum
Atlantshafsins. Tékkóslóvakía hefur látið bugast fyrir of-
beldinu. Sagan hefur endurtekizt þar, eins og víðar, á faum
árum. Hitler hélt innreið sína í Prag til þess að flyOa
tékknesku þjóðinni boðskap einræðisstefnu sinnar. Sams-
konar einræði undir öð'ru nafni féll eins og koldimm not
yfir Prag hinn 13. febrúar í ár — og síðan yfir alla hina
tékknesku þjóð.