Eimreiðin - 01.01.1948, Qupperneq 28
16
SKATTARNIR OG ÞJÓÐARBÚSKAPURINN KIMREIÐIN
Ef haldið er áfram þeirri skattastefnu, sem nú er ríkjandi hér
í landi og stöðugt aukin byrði skattþegnanna, beint og óbeint,
þá getur slík viðleitni varla endað nema á einn veg. Einkafram-
takið bverfur úr sögunni, en við tekur ríkisrekstur og embættis-
stjórn á atvinnuvegunum. Fjármagnið sogast smátt og smátt vir
böndum einstaklinganna og yfir til ríkisvaldsins, sem tekur afi
sér stórreksturinn, vegna þess að aðrir liafa ekki fjármagn til
slíkra framkvæmda. Þegar svo er komið, eru skattarnir orðnir
að verkfæri í böndum þeirra, sem vilja uppræta fjárráð og at-
vinnurekstur einstaklinganna og gera ríkið að vinnuveitanda
allra landsmanna.
Verðlaunaspurningarnar, IV. floldvur 1947. — (Úrslit).
Tíu rétt svör bárust við 1. spumingu síðasta heftis, eklcert rétt svar við
2. spurningu og 2 rétt við 3. spurniugunni. Þessir svöruðu fyrstu spurningunnt
rétt: Auðunn B. Sveinsson, Barónsstíg 25, Rvík, Guðrún Gísladóttir, Hafnar-
götu 44, Seyðisf., Helgi Sigtryggsson, Hallbjarnarstöðum, Jakob J. Bjarnason,
Síðu, Jón Þ. Buch, Einarsstöðum, Jón Jónsson, Firði, Seyðisf., Sigríður Ó.
Kjartansdóttir, Ilnífsdal, Steinunn H. Bjarnason, Sólvallag. 14, Rvík, Vigdís
Ketilsdóttir, Grettisg, 26, Rvk. og Þóroddur Guðmundsson, Reykjanesi, sem
einnig svaraði rétt 3. spurningunni, ásamt Helga Sigtryggssyni, Hallbjarnar-
stöðum.
Verðlaunin fyrir rétt svar við 1. spurningunni hlaut, með hlutkesti, Sig-
ríður Ó. Kjartansdóttir, Hnífsdal, en verðlaunin fyrir rétt svar við 3. spurn-
ingu féllu, með hlutkesti, til Þórodds Guðmundssonar, Reykjanesi.
Svörin við spurningunum eru þessi:
1. Hendingarnar eru úr kvæði Steingríms Thorsteinssonar, Hanstkvöld,
(Ljóðmæli, útg. 1910, hls. 120).
2. Setningarnar eru úr skáldsögunni Skálholt eftir Guðmund Kamban (sja
Skálholt I, Rvík 1930, hls. 231).
3. Kaflinn er úr ritgerðinni „Samliengi'ð í íslenzkum hókmenntum“ eitir
Sigurð Norðdal (sjá: fslenzk lestrarhók 1400—1900. Rvík 1924, hls. XVIII)-
Hlutaðeigendur eru vinsamlega bcðnir að ráðstafa verðlaununum eða láta
vitja þeirra til afgreiðslunnar, Bókastöð Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6, Rvík.