Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1948, Page 74

Eimreiðin - 01.01.1948, Page 74
62 AF BLÁUM BLÖÐUM EIMREIÐXN svo óþjál og andvíg, því sem um fram allt er ætlunarverk al- heimsins; en hann er vél til þess að búa til guði“. Þetta eru stórkostleg orð. Og víst á sá, sem slíkt hefur ritað, skilið að vera dáður sem mikill heimspekingur. Þarna vottar vissulega fyrir skilningi á stórkostlegum tilgangi heimsins. En því miður er sá skilningur ekki nógu ljós. Það verður ekki séð, að spekingurinn hafi gert sér grein fyrir því, að það mannkyn, sem ekki kemst áleiðis til að verða goðkyn, er dauðadæmt. Og enga þá fræðslu veitir heimspeki lians, sein dugað geti til að sýna oss, hvernig skipta megi um frá helstefnu til lífstefnu. Bergson liefur allt of mikla aðdáun á dulspekistefnunni, mystík- ismanum. En þessi svo óskiljanlega víði lieimur geims, sólna o. s. frv., er undursamlegur, langt fram yfir það, sem nokkur dulspeki nær til. Og Bergson liefur ekki, fremur en fyrri heim- spekingar, skilið hið sanna eðli hinnar dulrænu leiðslu. En þegar það er gert, þá er í raun réttri mystíkismanum, dulspekistefn- unni, lokið. II. Bergson er meiri vitringur en svo, að hann geri, eins og sumir aðrir, ráð fyrir því, að í öllum alheimi sé ekki til líf nema á þessari jörð. Hann kemst, meira að segja, þannig að orði (Les deux sources, s. 273): „il est vraisemblable que la vie anime toutes les planétes suspendues á toutes les étoiles“. Að vísu er nokkuð óljóst að orði komizt. En þó virðist réttast að þýða þetta þannig, að Bergson telji það „líklegt, að lifandi verur séu til á jarðstjörnum allra sólna“. Þetta hefur þó ekki reynzt hinurn franska speking nein hjálp til að átta sig á uppruna trúarbragðanna — en þau er öll að rekja til mis- og vanskilinna álirifa frá lífverum á öðrum jarðstjörnum alheimsins — né lieldur á þessu aðalatriði, hvernig mannkyn getur komizt á leiðina til að verða goðkyn. I þessu efni er enski spekingurinn Ripley Webb liinum franska langtum fremri. Webb er ekki einungis farinn að skilja, að sam- hand við fullkomnari mannkyn á öðrum ^arðstjörnum alheinisins muni geta átt sér stað, lieldur telur liann einnig líklegt, að það samband sé svo nauðsynlegt, að ef það tekst ekki, þá sé ekki annað framundan en glötun. Hann liyggur jafnvel þá glötun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.