Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1958, Qupperneq 13

Eimreiðin - 01.04.1958, Qupperneq 13
EIMREIÐIN 85 brott með sér nálega helming eigna þinna, það veit ég ekki fyrir víst. Helzt er ég þó á því, og sömuleiðis að þú hafir tekið þetta allt mjög nærri þér. Og þú hefur án efa hugsað margt. Má vera að þú hafir meðal annars hugsað sem svo: „Mennt- unarlaus kaupsýslumaður, dæmdur til að deyja út. Guð á himnum, er þetta þá útkoman? Gleymdur um leið og mað- ur er dauður og nafnið manns ekki framar nefnt!“ Síðan kom seinna stríðið og öll tækifærin, og þú notaðir þau, Baldur Freyr. Þú brunaðir tvíefldur fram á vígvöll at- hafnalífsins og græddir milljónir. Talið er að þú hafir stund- um teflt nokkuð djarft, ekki aðeins með fjármunina, heldur °g mannorðið fyrst og fremst, æruna þína, vinur, en þú slappst. Þú slappst. Menn og verðmæti sukku í saltan sjó, en hagsmunir þínir flutu uppi og björguðust, og æran með. Þeir voru ekki allir jafnheppnir og þú, eða slyngir kannski, leik- braeður þínir, en meðan smyglmálið fræga var í rannsókn er sagt að þú hafir heitið á Strandarkirkju. Þó mun dollara- hneykslið árið eftir hafa gengið enn nær þér, enda ekkert oema guðs órannsakanleg forsjón, sem þá forðaði þér frá bigthúsinu, Baldur Freyr. Eftir það tókst þú að kenna vanheilsu og hættir að leggja undir í fjárhættuspili íslenzkrar athafnasemi. Þú settist í helgan stein, mikils til. — Æ, þetta hjarta, sem farið var að slá oreglulega, það vakti þér marga hugsun nýstárlega: Til hvers Var þessi hættusigling framin og gildum sjóðum borgið í land, ef enginn fagnar þér heimkomnum, né frægir þína för? „Bráð- um dauður," datt þér í hug, — voru þá engin ráð til að lifa af sinn eigin dauðdaga? — Jú, þér kom ráð í hug: að stofna sjóði — að styrkja líknarstofnanir og menningarmál. Ég veit ekki hversu marga sjóði þú stofnaðir, Baldur Freyr, Syo að nafnið þitt mætti lifa sjálfan þig, en þeir voru margir. f*ú kássaðist með peningana þína upp á Pétur og Pál, ef svo yoætti segja, arkaðir inn á stjórnardeildir ráðuneytanna, vís- mdalegar rannsóknarstofur, listahallir og trúboðsstöðvar með Sjafabréf upp á Baldurs Freys legöt og stípendium, af smekk- leysi þess manns, sem skiptir sér af því sem honum kemur ekki við, og treður sér inn þangað sem honum er ekki boðið, °g kveður sér hljóðs um það málefni sem hann hefur ekki vit
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.