Eimreiðin - 01.04.1958, Qupperneq 56
128
EIMREIÐIN
næstur bær fjallveginum, en er nú í eyði. Ekki var heldur
um skeið búið á Ljótarstöðum, en nú er Sigurður Sverrisson
úr Álftaveri fluttur þangað og er tekinn að græða upp mold-
irnar út frá bænum, en þarna er víða talsverður uppblástur
í heiðinni. Er jarðvegur þykkur og gilskorur djúpar. Þornar
landið um of á milli þeirra og tekur að blása, en í kring er
kjarnmikill þurrlendisgróður og ilman úr jörðu. Oft hafa
nærliggjandi eldfjöll varpað ógn og dauða yfir þessi gróður-
sælu heiðarlönd, og ekki þótti Eggerti Óafssyni búsældarlegt
á Ljótarstöðum eftir Kötlugosið 1755, þegar tveggja feta
þykkt öskulag þakti allt sléttlendi og þær sjö hræður, sem
á bænum bjuggu, höfðu ekkert sér til viðurværis seinni hluta
sumars, nema nytina úr tveimur hálfgeldum kúm og hvanna-
rætur.
Frá Ljótarstöðum fylgdi Ásgeir, sonur Sigurðar bónda,
okkur á leið. Við héldum austan giljanna norður af bænum
og þræddum kambana upp eftir heiðinni allt norður fyrir
Tjaldgilsháls. Er það lengri leið en jafnlendari heldur en
þegar farið er yfir gilin. Þegar kemur upp á heiðarbrúnina,
blasir við hið fegursta útsýni, og fengum við nú bætta þa
fjallasýn, sem við söknuðum á Herðubreiðarhálsi. Hið næsta
lágu mosagrænar heiðar og undirlendi Skaftártungu. í norð-
austri sást móta fyrir Vatnajökli, og suður af Síðunni teygðu
síg hraun og svartir sandar allt í sjó fram. Á Mýrdalssandi
sást hilla undir Hjörleifshöfða og Hafursey, en nokkru nær
Atley og Rjúpnafell. Undir sólu að sjá glampaði á Mýrdals-
jökul, heiðan og kláran, með Kötlu ósköp yfirlætislausri
undir fannahjarni í austurbrúnum. Sunnarlega við jökul'
jaðarinn mátti greina Sandfell í fjarska, en nær heiðinni nsU
Kerlingahnúkar og Einhymingur, hömrum girtur að norðan,
með Öldufell og Axlir að baki. Austan allra þessara fjalla
rennur Hólmsá, sem skilur afrétti Skaftártungumanna °S
Rangvellinga. Er talið, að hún geti oft orðið illur farartálmþ
en að þessu sinni lét hún lítið yfir sér. Er ágætt vað á ánni
norðan Brytalækja. Er þá komið að ánni ofan af heiðinn1
niður allbratta hlíð, þar sem enn má sjá sprek og spýtnabro1
úr varnargirðingu, er eitt sinn var reist á þessum slóðum-
Handan Hólmsár tekur við sandi orpið og mosavaxið hraun-