Eimreiðin - 01.04.1958, Síða 58
130
EIMREIÐIN
eru hestahagar og volg uppspretta, er Strútslaug heitir. Er
þar nú náttból fjallamanna, og þar mætast Skaftfellingar og
lvangvellingar í fjárleitum á haustin. Þegar við komum úr
hrauninu vestan Hólmsár, tók Mælifellssandur við, kolsvart-
ur og gróðurvana svo langt sem augað eygði. Til suðurs lá
sá hluti Mýradalsjökuls, sem kallaður er Sléttijökull eða Botn-
jökull. Er hann svartrákóttur af sandi og ösku, sem fokið
liefur á hann eða gubbazt upp úr sprungum með levsingar-
vatninu. Við norðurbrún jökulsins er móbergskeila ein mikih
sem heitir Mælifell. Dregur sandurinn nafn af henni, enda
er hún leiðarvísir þeirra, er um hann fara. Fellið er sorfið
af jökli og jökulsám og á einum stað talið vera svo útgrafið,
að þar á jafnvel að vera gegnt í gegnum það. Hefur fjalla-
maður nokkur sagt svo frá, að eitt sinn er hann smalaði
jökulröndina, hafi nokkrar kindur hrokkið undan honum *
klettaskúta í fjallinu. Hélt hann á eftir þeim, en þær runnti
áfram eftir hellinum inn í sortann. Fjallamanni þótti grun-
samlegt, hvað féð leitaði fúslega inn í þessi göng. En bráð-
lega sá hann taka að birta fyrir botni ganganna. Opnuðust
þau þar aftur út á sandinn. Komst fjallamaður þar út með fe
sitt og taldi sig hafa gengið í gegnum Mælifell. Annars liggul
leiðin norðan fellsins, en sunnan við annað hátt og strýtu-
myndað fjall, sem kallað er Meyjarstrútur eða aðeins Strútur.
Milli fellanna rennur jökulsá ein lítil eftir sandinum. Kemui
liún undan jöklinum og fellur austur í Hólmsá. Heitir hun
Brennivínskvísl, og mun nafn hennar þykja ærið nóg tilefm
fyrir lúinn ferðamann að doka þar ögn við áður en lagt el
lengra vestur á bóginn. Mælifellssandur er talinn illur yfir'
terðar fyrrihluta sumars sökum bleytu og naumast fær fy11
en um miðjan júlímánuð, en er við fórum þar um, var eiU'
muna tíð og færðin því hin ákjósanlegasta. Aðeins vætluðu
nokkrir leysingarvatnstaumar undan jöklinum og liðuðus1
norður sandinn eftir sólbráð dagsins. En vestan undir hrygS
þeim, sem Skiptingaralda heitir, lágu enn þá skaflar af snj°
síðasta vetrar. Af Skiptingaröldu er skipað í leitir austur yf*1
sand í fjallgöngum Rangæinga. Þaðan er talinn allt að þrigSJ3
stunda lestargangur í Hvanngil, sem er næsti grashagi vestan
sandsins. Er um tvær leiðir að velja. Beint vestur sandinn 1