Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1958, Síða 60

Eimreiðin - 01.04.1958, Síða 60
132 EIMREIÐIN Þegar þessi leið er farin, er komið í botn Hvanngils, sem raunar er öllu fremur dalverpi en gil. Þar er töluverður gróð- ur og ágætir hagar, þótt engin sé þar nú hvönnin. Riðuni við ofan eftir dalverpinu og tjölduðum frammi á kvíslarbökk- unum, en slepptum hrossunum á graslendið fyrir innan. Nokkru framar við mynni dalsins í hraunjaðri er leitarmanna- kofi Rangæinga, en þar í kring eru hagar minni og lítið að- hald fyrir hross. Hvanngil er hins vegar umgirt hálsum. Að vestan er Ófæruhöfði, sem smáhækkar inn með gilinu, og heitir Ófæra hæsti hnúkur hans inn af botni gilsins. Að aust- anverðu eru Hvanngilshnausar. Er hin furðulega lögun þeirra ef til vill orsök einhverra þeirra kynjasagna, sem um Hvann- gil ganga. Standa upp úr þeim móbergstindar, mótaðir af vatni og vindi í tröllslegar myndir, sem þruma yfir gilinu og gefa staðnum ævintýralegan blæ. Ekki fórum við alveg varhluta af undrum Hvanngils, því að nokkru eftir sólsetui' skall á niðadimm þoka. Virtust þá klettarnir kvikir af H£i- En samspil ótal lækjarsytra, sem barst framan úr dalnum, var sem ómur fjarlægra radda eða dularfullt pískur í öræfakyrrð- inni. Á áliðinni nóttu þóttumst við heyra hrossin fara fratn hjá tjöldunum niður dalinn og óttuðumst við, að komið væri strok í þau. Varð þó lítið að gert fyrir þoku. En er dagaði, létti skyndilega þokunni, og kom þá í ljós, að hrossin höfðu öll verið hin spökustu fyrir innan okkur. Voru þau nú sott og búizt til brottferðar. Yfirgáfum við svo Hvanngil á leið til byggða, og þótti sumum okkar við ekki hafa dvalið exn í dalnum þá nótt. Úr Hvanngili er um ýmsar leiðir að ræða, þegar haldið e’ til byggða. Þannig má fara um Sátubotna og Launfit, sunnan Laufafells og Rangæingaveg, unz komið er að efstu bæjuiu á Rangárvöllum. Eins má fara nokkuð skemmri veg sunnan Torfavatns, yfir Markarfljót á Króknum og um Reiðskarð ,l áðurnefnda leið hjá Hungurskarði. Enn má fara yfir Markat' fljót vestan Hattfells og þaðan niður um afrétti Fljótshh'ð' inga allt til byggða. Syðsta leiðin er suður með Mýrdalsjökh og niður í Þórsmörk. Þessi leið er lítt kunn, enda sjaldan farin af ferðamönnum. Þó telur Daniel Bruun hana naec fjallvegum í leiðarlýsingum sínum, þótt hann afráði að vis”

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.