Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1958, Page 64

Eimreiðin - 01.04.1958, Page 64
136 EIMREIÐIN arfljóts í lýsingu sinni af landinu. Framan við jökulinn voru víða skvompur í aurinn og jökulker, sem gerðu leið okkar enn torfærari. Voru bleytur á milli þeirra, en barmar ótryggir og urðin því öll viðsjál yfirferðar. Um þessar torfærur hlykkj- aðist lestin áfram hægt og sígandi fram auraria, þar til komið var á Emstrufitjar. Rennur þar tær lækur í ána rétt fyrir ofan gljúfrin, og þar eru nokkrir hagar fyrir hesta, svo að þar má hafa næturstað. í gljúfrum Emstruár og einnig með Markarfljóti, allt niður undir Þórsmörk, má sjá allþykk liraun- lög, sem máski eru komin austan frá Eldgjá og hafa runnið þarna suður á svipaðan máta og stóru Þjórsárhraunin frá Fiskivötnum, og hefur jökullinn þá allur verið minni. Á ein- um stað sunnan undir jöklinum sér á hraunbrún þessa, og er jökulruðningur undir sem ofan hennar. En þarna hafa jarð- fræðingar ferðazt lítið um, og ókunnugt er mér um skráðar rannsóknir þaðan. Eitt er víst, að hafi þessi leið verið fjöl- farin á söguöld, hefur Syðri-Emstruáin verið vatnsminni eða ekki runnið eins þröngt og hún gerir nú og jökullinn verið töluvert minni. Á seinni hluta miðalda kann hann að hafa gengið allt fram undir gljúfrin, en er nú aftur á hröðu und- anhaldi. Má greina það af jökulportum, sem nú liggja uffi ís afskorinn frá aðaljöklinum. Einnig telja kunnugir, að jökulfellin tvö hafi verið hulin jökli fyrir nokkrum árum- Eftir að hafa áð á Emstrufitjum skamma stund og hvílt okk- ur eftir amstrið á jöklinum, lögðum við upp með læknum a ás þann, er Langháls heitir og er í innstu leitum Vestur-Ey- tellinga, en afréttur þeirra milli Syðri-Emstruár og Þröngár lieitir Almenningur. Fórum við framan við hálsinn, en krækt- um því næst inn fyrir gilin að sunnan, sem eru brött með skörpum hraunbrúnum. Mun fremra gilið heita Bjórgil, en hið innra Þvergil. Er þá Ulhöfuð á vinstri hönd og liggur þar upp undir jöklinum. Þaðan héldum við vestan í háum, rauðleitum eldgíg, er Fauski heitir, og að Ljósá. Inn af Ljós- árbotnum sér á annan eldgíg uppi undir jökli. Heitir þar Laki, en Lakaflatir sléttlendið vestur af ánni. Meðfram Ljósá liggja hraun, sem ekki virðast ýkjagömul og eru sennilega komin úr áðurnefndum eldgígum. Eru þau af sumum talin hafa runnið á árunum 1300 til 1350. Hafa jökulhlaup síðar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.