Eimreiðin - 01.09.1974, Qupperneq 40
EIMREIÐIN
OVIDIUS
Ummyndanir J
FAEÞON
Sólguðinn átti sal háan, borinn uppi af miklum súlum; hann
lýsti af glóandi gulli og lograuðum eir, gaflhlaðið var að ofan
þakið gljáandi fílabeini, og vænghurðirnr stöfuðu silfurskini.
Og ekki gaf srníðin efniviðnum neitt eftir, því enginn annar en
Vúlkan liafði skorið í þær myndir af höfunum, er girða lönd-
in, jarðkringlunni sjálfri og himninum, sem hvelfist yfir jörð-
ina. í öldunum voru á sveimi sjávarguðir, hinn rómfagri Trí-
tón, Próteifr hinn marghami, Aegeón, sem studdi liundrað
liöndum á geysimikil hvalbök, Dóris og dætur hennar, sem sum-
ar virlust vera á sundi, aðrar sátu á kletti og létu goluna þurrka
grænleita lokka sína, og enn aðrar riðu á fiskbaki. Þær voru
ekki allar eins ásýndum, en háru þó sama svipmót, eins og títt
er um systur. Löndin voru þakin mönnum, borgum, skógum,
dýrum, ám, dísum og öðrum vættum, yfir þessu öllu var mynd
leiftrandi himins með sex stjörnumerkjum á vinstri liönd og
sex á hægri. /