Eimreiðin - 01.09.1974, Blaðsíða 64
ÉIMREIÐlN
einnig til fundar við Brésnéf til að ræða leiðir til þess að tryggja
bætta sambúð austurs og vesturs á komandi árum og áratugum.
í öll þessi skipti hafa heimsblöðin og fjölmiðlar um víða
veröld keppzt um að birta myndir af þessum valdamestu mönn-
um heims, þar sem þeir eru að skála í kampavíni eða undirrita
milliríkjasamninga. „Ein undirskrift á dag / kemur heims-
friðnum í lag“, sagði einn bandarískur diplómat við eitt slíkt
tækifæri. Þegar Ijóst varð, að viðræður vaidhafa risaveldanna
ætluðu að bera þann árangur, að sambúð Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna batnaði, tóku þjóðarleiðtogar og stjórnmála-
menn í öðrum rikjum að keppast við að fagna „detente“ og
fullvissa almenning um, að nú yrði þess ekki langt að bíða, að
varanlegur friður kæmist á í heimi liér. Bjartsýnustu menn
spáðu því einnig, að ekki væri lengur þörf fyrir varnarbanda-
lög. Deilur milli einstakra ríkja (eins og t. d. ísraels og Araba-
ríkjanna) áttu að sjatna, vegna þess að síórveldin ætluðu að
sjá til þess, að væntanlegur heimsfriður rofnaði ekki. Hér á
íslandi var það álit margra, að vegna balnandi ástands í heim-
inum væri t. d. ekki lengur þörf fyrir varnarlið á Keflavikur-
flugvelli.
Brésnéf og Nixon gerðu með sér samning, sem nefndist SALT
I, og er lionum ætlað að takmarka útbreiðslu gjöreyðingar-
vopna og banna stórveldunum tveimur að reisa fleiri eldflauga-
stöðvar í heimalöndum sínum, a. m. k. i 5 ár. Öryggisráðstefnur
hófust í Helsinki og Vín um gagnkvæma og jafna fækkun í
herliðum varnarbandalaga Evrópu, en þeim er ekki lokið enn.
Ekkert bendir til þess, að fækkað verði í herjum Varsjár- og
N.-Atlantshafsbandalagsins á næstunni, en engu að síður er
það von manna, að umræddar ráðstefnur beri árangur.
Bjartsýni manna var í hámarki, en skjótt skipuðust veður í
lofti: októberstríð Araba og Israelsmanna hófst; bylting var
gerð í Chilc; landamæradeilur Kína og Sovétríkjanna
komust á liættulegt stig; olíu- og orkukreppa skall á; herinn
lét af stjórn í Grikklandi, og Kýpurdeilan blossaði upp; verð-
bólguvandinn hefur sett svip sinn á heimsmálin; fæðuskortur
ógnar öllu mannkyninu og fleiri slílc mál hafa minnt menn
óþyrmilega á, að enn á heimsfriður langt í land þrátt fyrir
stórbætta sambúð stórveldanna í austri og vestri. Þetta hefur
nú leitt til þess, að menn á Vesturlöndum, jafnt til hægri og
vinstri, hafa velt því fyrir sér, hvort „detente" sé ímyndun eða
raunveruleiki.
Báðamenn í Sovétríkjunum og Bandaríkjunum hafa
stefnt að bættri sambúð með þvi að auka og margfalda við-
308