Eimreiðin - 01.09.1974, Blaðsíða 78
EIMREIÐIN
námsmannafélags íslendinga í Kaupmannahöfn 1. desember
sl. Hún birtist síðan í Þjóðviljanum. Ræðan er öll afsöluin
fyrir því, að svo vel tókst til um undirskriftasöfnun Varins
lands og fjallar síðan um ritskoðun. Þar afsakar ritstjórinn
ski'if sín um foi’göngumenn Varins lands með þessum fleygu
orðum: „ . . . alþýðan vill nú orðið fá að segja sínar skoðanir
og sitt álit umbúða- og refjalaust“.
Ræðu sinni i Kaupmannahöfn lauk þessi ritstjóri með þess-
um orðum:
„En að lokum er hér ein frélt um stjörnukíki. Frá því var
skýrt í einu dagblaðanna nýlega að nú væri unnið að því að
koma fyrir á Seltjax-nai’nesi stærsta stjörnukíki sem til þessa
hefur verið aðgengilegur á Islandi. Dagblaðið hafði það eftir
vísindamanninum sem sér um kíkinn mikla að vísindamenn
og áhugamenn um stjörnuskoðun gætu skoðað í kíkinn. Vís-
indamaðui’inn var einmitt einn þeirra sem beittu sér fyrir
undii-skriftasöfnun um hersetu á Islandi. Kannski býður hann
hinum „aðstandendunum“ 13 að skoða í kíkinn. Kannski fá
þeir að kíkja út i heiminn. Vonandi sjá þeir sem alli-a allra
bezt. Vonandi sjá þeir vetrai’brautirnar, sólkerfin og fjósakon-
ui’nar. Svo geta þeir félagar boi’ið saman bækur sínai’, litið
harla ánægðir liver á annan og sagt: Þetta er harla gott. Við
höfum unnið afrek, sem er einstakt í heiminum, þvi hvergi
nokkurs staðar annars staðar í hinum óendanlega heimi okk-
ar hafa herskarar bundið annan eins krans og gert var á ís-
landi á 11 hundruð ára afmæli Islandsbyggðar með 55.000
undirskriftum.“
Óvildin er djúpstæð hjá ritstjóranum. Hann þolir alls ekki,
að minnzt sé á andstæðinga sína, ekki einu sinni í sambandi
við störf þeirra. Andúð Þjóðviljans í þessum dúr hefur fram
til þessa einkum lcomið fram gagnvart þeim listamönnum,
sem blaðið telur ekki skoðanabræður sína. Afstaða blaðsins
gagnvart forgöngumönnum Varins lands er skóladæmi um
það, hvernig menn eru lagðir í einelti vegna skoðana sinna.
Nái kúgunaraðgerðir Þjóðviljans fram að ganga, er Ijóst, að
ritfi'elsi og skoðanafi’elsi hefur verið fótum troðið.