Eimreiðin - 01.09.1974, Blaðsíða 71
JÖSEF BRODSKY RITHÖFUNDUR
EIMREIÐIN
Bænarskjal vegna
Vladimirs Maramzins
Snemma í ágúst bárust fréttir um, að K.G.B.-menn hefðu
handtekið rithöfundinn Vladimir Rafailovitsj Maramzin i Len-
ínhorg. Almenningur þekkir án efa minna til hans en Solsjen-
itsyns. Vera má, að þessi liandtaka sýni lesendum fram á, að
til er annar rithöfundur í Ráðstjórnarríkjunum. Það er sönnu
næst, að Ráðstjórnarríkin eru það land, þar sem nafn höfund-
ar er ekki kynnt á bókarkili, heldur getur það fyrst að líta á
fangaklefahurðinni.
Ég hripa þetta ekki eingöngu niður vegna þess, að ég hyggi
Vladimir Maramzin hinn snjallasla rithöfund kynslóðar eftir-
stríðsáranna né vegna þess, að ég hef þá ánægju að vera vinur
hans. Ég ræðst fyrst og fremst í það af þeim sökum, að nú
kemur niður á honum, að hann safnaði saman fimm bindum
verka sinna og sendi vestur fyrir járntjald til öryggis. Höfund-
ur formála þessa ritsafns, blaðamaðurinn Mikliail Heifetz, hef-
ur um skeið mátt þola kyrrsetningu vegna rannsóknar og hon-
um hótað sjö ára fangelsisvist. Efim Etkind, prófessor við
Herzen-uppeldisfræðiskólann og höfundur margra verka um
franska ljóðagerð og þýðingar sem fræðigrein, sem ritaði um
formála þennan, hefur verið rekinn úr Rithöfundasamband-
inu, vikið úr starfi og' sviptur háskólatitlum sínum.
315