Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1974, Page 61

Eimreiðin - 01.09.1974, Page 61
EIMREIÐIN konar fáfræði og tómlæti kann að einhverju leyti að vera or- sök fyrir fálæti annarra listgreina, þar með þeirra sem að ofan eru taldar. En einnig er hér um að ræða skaðvænlegt fálæti og tómlæti innan kirkjunnar um hlutverk og eðli listar, þ. e. a. s. röng guðfræði. Bæði kirkju og list er hagur að nánu samfélagi, þeirra heim- ur er heimur táknanna, heimur tjáningar og sköpunar, heimur hinna lóðréttu viðfangsefna, þar er fengizt við mennskuna og dýpstu spurningar mannsins um sjálfan sig á heim sinn. List- inni er hagur að trúartáknum kirkjunnar, trúarlegri upplifun og innsæi, henni er hagur i að ganga með trúnni upp að kross- inum og sjá inn í hyldýpi mannlegrar þjáningar, haturs og kærleika. Henni er hagur í því að ganga með trúnni til upp- risunnar, eina tákni mannlegrar vonar, sem trúin þekkir. Kirkjunni er sömuleiðis hagur að tjáningargáfu listamannsins og sköpunarhvöt hæði til boðunar og tilheiðslu. Henni er hag- ur að nánu samfélagi við listina, þegar um er að ræða tján- ingu og greiningu á mannlegu ástandi og einnig þegar um er að ræða sköpun og frelsun. Hér hefur einkum verið miðað við bókmenntir, en fróðlegt hefði verið að ræða tengsl guðfræðinnar við aðrar greinar hinnar fögru lista, einkum þeirra listgreina, sem lengi hafa verið „úti í kuldanum“, t. d. leiklist og danslist. Kirkjan vinnur ekki aðeins að því að styrkja hið heilaga innan sinna veggja, hún vill helga hið veraldlega. Hún er til mannsins vegna, til þess að reisa hið lárétta mannlíf þannig, að það megi frelsast, gleðjast og þakka, hrópa og dansa, spila og leika sér, eins og við gerum, jiegar einhverjum erfiðleikum og áhyggjum er létt af okkur (eða vildum geta gert!): líkt og Grikkinn Zorba eða Fiðlarinn á þakinu, Tevye mjólkurpóstur. Innri gleði þeirra hrýzt út þrátt fvrir vtri erfiðleika, þeir minna á kýrnar á vorin, (en ekki á haustin eins og okkar hátiðalausa, en hátíðlega þjóðfélag gerir). Sköpun og endursköpun eru meginhugtök trúarinnar. Hlutverk kirkjunnar er að endur- skapa, það var líka hlutverk Jesú, en saga hans endaði með þvi, að rómversku hermennirnir settu þyrnikórónu á höfuð honum og reyrstaf í hönd lians, settu hann í skikkju og köll- uðu hann konung, grín-konung, hann var i þeirra augum trúð- ur. Segist vera eittlivað, sem hann er ekki, gera eitthvað, sem hann getur ekki, líkur trúð, sem reynir að sópa Ijósgeisla af gólfinu, dettur, — og allir lilæja! Hvernig er hægt að sópa ljósgeisla með kústi? Þannig verk- ar kirkjan stundum. Kannski líkist hún Chaplin líka, sem var

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.