Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1974, Qupperneq 46

Eimreiðin - 01.09.1974, Qupperneq 46
EIMREIÐIN heldur ekki að halda aftur af hestunum, og hann kann ekki nöfn þeirra. Út um allan himin sér liann sér til mikillar skelf- ingar hin risastóru dýr, ferleg ásýndum. Hann kom þar að, er Sporðdrekinn myndar tvo boga með örmum sínum, og nær með hala sínum og bognum limum yfir tvö stjörnumerki. Þegar sveinninn sá hann, ataðan svörtu eitri, ota að sér ógnandi hring- uðum halanum, þá varð honum svo mikið um, að liann stirðn- aði af hræðslu og sleppti taumunum úr hendi sér, þannig að þeir féllu á bök liestanna, en það varð til þess, að þeir tóku á sprett og fóru á stökki stjórnlaust um loftið um ókunna stigu, þeir fóru hvert sem þeim sýndist án þess að nokkur hefði liemil á þeim, þeir þutu milli stjarnanna, sem voru festar á himin- hvelfinguna og drógu vagninn á eftir sér yfir vegleysur. Þeir sóttu ýmist upp á við eða æddu niður í móti, svo að þeir voru komnir fast niður að jörðunni: Mánagyðjuna furðaði mjög á því að siá fáka sólguðsins komna miklu neðar en sína og reykinn leggja upp úr skýjun- um. Jörðin var lögð eldi og það mest sem hún var hæst, gjár ginu og mýrar þornuðu upp við hitann, engin sviðnuðu og laufg- ir lundir stóðu í hjörtu báli, og gróður jarðarinnar magnaði eldinn, sem eyddi honum. Og það sem meira var: miklar borgir hrundu til grunna, heilar þjóðir urðu eldinum að bráð og brunnu til ösku, hin skógi vöxnu fjöll stóðu i loga, Aþos logaði og Tár- us, Kilix, Tmolus og Öte, einnig Idafjall, sem þornaði þá upp, en hafði áður verið lindauðugt, Helikon, fjall listgyðjanna, og Hemos, er síðar fékk nafnið Ögaríus. Þá logaði hin mikla Etna og stóðu upp af henni tvær eldtungur, Parnassus með hnjúk- ana tvo og Erys og Kynþus og Oþrys, loks hin snjólausa Rho- dope, Mimas, Dindyma og Mykale og Kiþeron. Þá varð kuld- inn Skýþalandi að engu gagni, Kákasus logaði, Ossa og Pindus og Olympus, sem gnæfir hærra en þeir báðir, hin háu Alpa- fjöll og hinn skýsæli Appenninus. Nú sér Faeþon, að jörðin stendur öll i háli og hitinn vex úr öllu valdi, hann andar að sér sjóðheitu lofti, lílct og úr djúpum ofni, hann finnur, að vagninn er að verða glóandi, hann þolir ekki við öllu lengur fyrir öskufalli og heitur reykjarmökkur sveipast um hann. Hann veit nú ekki lengur hvert stefnir eða hvar hann er staddur, því hann sér ekki út úr reyknuxn og hann á nú allt sitt undir duttlungum hinna vængjuðu jóa. Þá ætla menn, að Blálendingar hafi dökknað á hörund, er blóðið streymdi út í hiiðina. Þá varð Lýbia eyðimörk, er Iindir hennar þornnðu upp við hitann. Þá leystu vatnadísir hár sitt og grétu hver sína lind. 290
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.