Eimreiðin - 01.09.1974, Page 75
EIMREIÐIN
verið reist á því, að nú ætti að afhenda útlendingum landið,
fórna sjálfstæði, þjóðerni, menningu o. s. frv. Allar hafa þess-
ar röksemdir reynzt ástæðulausar, enda oftast stafað af þröng-
sýni eða skammsýni, nema hvort tveggja sé. Reynslan hefur
afsannað allar úrtölur og lirakspár af þessu tagi.
Um nokkurt skeið liefur mjög verið þráttað um það, hver
nauðsyn bæri til samstarfs við útlendinga um stóriðjurekstur
hér á landi. Flestum mun nú ljóst, að einhvers ltonar samstarf
er nauðsynlegt, því að einir höfum við Islendingar ekki það
fjármagn, tæknikunnáttu eða markaðsgetu, sem óhjákvæmileg
er. Að vanda hafa ýmsir óttast, að við kynnum að verða er-
lendum þjóðum eða fjölþjóðafyrirtækjum að hráð í slíkri sam-
vinnu. En nú eru ný viðhorf uppi, sem kunna að gera sérlega
hagstæða samstarfssamninga mögulega, auk þess sem þeir
samningar kynnu að verða ýmsum úrtölumönnum meir að
skapi en þeir samningar, sem áður hefur horið hæst. Hér er
um að ræða hugsanlegt samstarf Norðurlanda i orku- og iðn-
aðarmálum og þátttöku íslands í því. Áhugi er á Norðurlönd-
um um orkukaup frá okkur til stóriðjureksturs hér á landi,
sem fjármagnaður yrði og rekinn af norrænum aðilum í sam-
ráði við okkur. Einnig kynnu möguleikar að opnast á hinum
almenna markaði. Engar þjóðir standa okkur íslendingum nær
að menningar- og stjórnarfarslegum skyldleika. Val samstarfs-
aðila er á þessu sviði sem öðrum mjög pólitiskt i eðli sínu.
Ekki eru merkjanlegar aðrar þjóðir, sem eðlilegra og áhættu-
minna virðist að eiga við samstarf í svo mikilvægum efnum
STÚDENTAR OG HASKÖLINN
Fullveldissamkoma stúdenta 1. desember vekur jafnan eft-
irtekt og umræður. Valið á umræðuefninu og ákvörðunin um
ræðumenn fer fram með þeim hætti, að samkoman er fyrir-
fram kjmnt betur en margt annað, sem gerist í þjóðlífinu. Allt
það sem fram fer á samkomunni er siðan sent beint til þjóð-
arinnar um útvarpið, en slíkar beinar útsendingar á atburð-
um eru orðnar sjaldgæfar og gerast aðeins, þegar um meiri
háttar atburði er að ræða. Þjóðin lítur á samkomu stúdenta
þennan dag sem tækifæri til að kynnast þvi, sem er að gerast
meðal þeirra í Háskólanum.
Óhætt er að fullyrða, að fram á síðustu ár hafi samkoman
vakið athvgli vegna þeirra sjónarmiða, sem þar komu fram i
ræðum manna. Þvi miður spinnast umræður ekki lengur um
319