Skinfaxi - 01.05.2009, Qupperneq 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Það er gott hljóð í okkur Skagfirðing-
um og við lítum björtum augum til Ungl-
ingalandsmótsins. Það var strax mikill
áhugi í okkar röðum að taka að okkur
mótið eftir Grundfirðingar hættu við.
Undirbúningur hefur gengið vel enda
erum við vel í stakk búnir að taka að okk-
ur þetta mót. Þessi mót hafa verið að
mótast í gegnum árin og eru tiltölulega í
föstum skorðum. Hér á Sauðárkróki átti
sér stað mikil uppbygging samhliða
Unglingalandsmóti og Landsmóti 2004.
Í dag njótum við góðs af því við allan
undirbúning að komandi móti. Það má
segja að við séum með allt meira eða
minna klárt í sjálfu sér og ekki mikið sem
þarf að gera til að halda mótið,“ sagði
Halldór Halldórsson, formaður
unglingalandsmótsnefndar á Sauðár-
króki, í spjalli við Skinfaxa. Halldór er
dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands
vestra, en margir íþróttaáhugamenn
muna eftir honum þegar hann varði
mark FH-inga í knattspyrnu við góðan
orðstír á sínum tíma.
Aðspurður hvernig undirbúningur
hefði gengið sagði Halldór að allar áætl-
anir hefðu gengið eftir.
„Eins og ég sagði vorum við meira eða
minna tilbúnir að taka mótið að okkur.
Við höfum afskaplega gaman af svona
verkefnum og ekki síst að fá fólk hingað
til okkar í Skagafjörðinn.“
Fyrst og fremst gaman
og mikil áskorun að
halda svona mót
– Halldór Halldórsson, formaður unglingalandsmótsnefndar
Innspýting í bæjarlífið
– Hvernig er andrúmsloftið í bænum
fyrir mótinu?
„Það er mjög gott og bæjarbúar mjög
jákvæðir í alla staði. Það er spennandi
verkefni að fá hingað mikið af fólki og er
um leið mikil innspýting í allt bæjarlífið.
Fyrst og fremst er það gaman og mikil
áskorun að halda svona stórt mót,“ sagði
Halldór.
Fjölskyldan saman
Halldór segir Unglingalandsmótin hafa
slegið gegn og að þau séu tvímælalaust
frábært framtak í því að fá fjölskylduna til
að vera saman um þessa stærstu ferða-
helgi ársins.
Mót sem hittir í mark
„Ég verð að viðurkenna að ég var svo-
lítið efins um framtíð þessara móta í upp-
hafi en annað hefur heldur betur komið í
ljós. Þetta mót hefur sannað gildi sitt og
það hefur ekkert annað en verið að eflast
og stækka undanfarin ár. Það er ríkir
almenn ánægja með mótið hvar sem
maður kemur. Mótin sameina fjölskyld-
una og að halda þau um verslunarmanna-
helgi var frábær hugmynd. Þetta eru
mót sem svo sannarlega hafa hitt í mark.
Þetta eru ekki bara mót fyrir ungmenna-
félögin heldur eru þau öllum opin og
allir geta tekið þátt,“ sagði Halldór.
Hann sagði ennfremur að mótssvæðið
væri tilbúið að taka á móti fjölda fólks.
„Við tökum á móti öllum sem vilja koma
og eiga góða helgi í skemmtilegu og
fallegu umhverfi. Það er mikil lyftistöng
fyrir sveitarfélagið að fá að halda mótið
og við búum yfir dýrmætri reynslu frá
mótshaldinu 2004. Bæði þau mót heppn-
uðust afskaplega vel en við fengum
fádæma veðurblíðu sem hjálpaði okkur
mikið,“ sagði Halldór.
Í undirbúningi fyrir mótið á Sauðár-
króki í sumar þurfti ekkert að ráðast í
framkvæmdir. Öll íþróttamannvirki eru
til staðar eftir uppbygginguna samhliða
mótunum 2004.
„Mannvirkin, sem eru til staðar, bera
svo sannarlega þetta mót í sumar. Hér
eru glæsileg íþróttamannvirki á borð
við frjálsíþróttavöllinn, íþróttahúsið og
knattspyrnuvellina. Svo hefur verið lögð
hér mjög góð mótokrossbraut.“
– Er ekki mikil tilhlökkun og spenningur í
herbúðum ykkar fyrir mótinu?
„Ég hlakka mikið til mótsins og til-
hlökkunin er mikil meðal allra bæjarbúa.
Þegar nær dregur mótinu munu sjálf-
boðaliðar koma af fullum þunga að und-
irbúningi og ég hef ekki trú á öðru en að
vel gangi að manna öll störf. Meginundir-
búningurinn hvílir á framkvæmdastjóra
mótsins, Ómari Braga, sem býr yfir mikilli
reynslu við undirbúning svona móts. Við
ætlum að taka vel á móti fólki og von-
umst eftir að sem flestir komi og njóti
daganna vel meðan á mótinu stendur.
Unglingalandsmótin er ódýr fjölskyldu-
hátíð, einungis er greitt mótsgjald, en
frítt er síðan á tjaldstæðin, kvöldvökur og
leiktæki fyrir yngstu kynslóðina, svo að
eitthvað sé nefnt,“ sagði Halldór Halldórs-
son, formaður unglingalandsmótsnefnd-
ar UMFÍ á Sauðárkróki.
Sauðárkrókur