Skinfaxi - 01.05.2009, Qupperneq 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skagafjörður
Upplýsingamiðstöð
ferðamála á Norður-
landi vestra
Upplýsingamiðstöðin í Varmahlíð
er opin allt árið og veitir upplýsingar
um ferðaþjónustu á Norðurlandi
vestra og víðar. Skagfirskt handverk
í úrvali – ullarvörur, minjagripir og
fleira eigulegra muna. Frír aðgangur
að nettengdri tölvu og alltaf rjúk-
andi kaffi á könnunni. Sími 455 6161,
info@skagafjordur.is
Þéttbýli og sveitir í
Skagafirði
Skagafjörður er nálægt miðju Norður-
landi, um 40 km langur og fullir 30 km
á breidd milli Húnsness á Skaga og
Straumness innan við Fljótavík, þreng-
ist þó nokkuð innar en er samt 15 km
breiður þvert yfir frá Reykjadiski. Fram
í botn Skagafjarðar gengur Hegranes
og eru breiðar víkur báðum megin
þess og sandar miklir í botni. Siglinga-
leið um fjörðinn er greið og er hann
djúpur, þó gengur hryggur neðan-
sjávar út frá Hegranesi og annar frá
Áhugaverðir staðir í Skagafirði
Drangey, 4–5 km til norðurs, og er
Hólmasker nyrst á honum. Kemur það
upp um fjöru. Innar á hryggnum eru
Kvíslasker. Boðar og grunn eru út frá
báðum endum Málmeyjar.
Undirlendi er mikið í vestanverðu
héraðinu, nema undir Tindastóli. Að
firðinum austanverðum er nokkuð
undirlendi og há fjöll að baki. Náttúru-
legar hafnir eru engar, en skipalægi
nokkur, þó flest ill frá náttúrunnar hendi.
Inn af botni Skagafjarðar gengur
mikill dalur samnefndur. Er hann einn
mesti dalur landsins, breiður og grös-
ugur, kringdur svipmiklum fjöllum.
Aðalhéraðið er um 50 km langt en
klofnar innst í þrönga dali er ganga
langt inn í hálendið. Kallast þeir einu
nafni Skagafjarðardalir, en hafa lík-
lega heitið Goðdalir til forna. Undir-
lendið er 5–10 km breitt en út frá því
ganga þverdalir, bæði byggðir og
óbyggðir.
Austan að Skagafirði er hrikalegur
fjallgarður en nokkru lægri fjöll að
vestanverðu. Helstu eyjar á Skaga-
firði eru Drangey og Málmey. Upp
af firðinum er mikill dalur og breiður
sem fyrr sagði og flatlendi mikið á
Skaga. Helstu fjöll eru Tindastóll (989
m y.s.) vestan fjarðarins, Mælifells-
hnjúkur (1138 m y.s.) er rís fyrir
miðju héraði og Glóðafeykir (853 m
y.s.) í Blönduhlíð. Suður af héraðinu
greinast þrír dalir, Svartárdalur, Vest-
urdalur og Austurdalur, en Norðurár-
dalur gengur í austur inn af Blöndu-
hlíð. Utar eru Hjaltadalur, Kolbeins-
dalur og fleiri dalir þeim megin upp
frá austurströnd fjarðarins.
Meginvatnsfall sýslunnar er
Héraðsvötn sem verða til af Jökuls-
ám tveimur, Austari- og Vestari-, sem
koma undan Hofsjökli. Þau falla til
sjávar í tveimur kvíslum, sinni hvoru
megin við Hegranes. Allmiklar ár
falla úr flestum dölum, samnefndar
þeim, en fossar eru engir teljandi,
nema Reykjafoss (14 m) í Tungusveit.
Helstu stöðuvötn eru Miklavatn í
Borgarsveit, Höfðavatn á Höfðaströnd
og Miklavatn í Fljótum, öll gömul
sjávarlón. Aðalbergtegund í Skaga-
fjarðarsýslu er blágrýti en grágrýti
og móberg er á Skaga. Eldstöðvar
eru engar, nema ævafornar, svo sem
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08