Skinfaxi - 01.05.2009, Síða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ársþing Héraðssam-
bands Þingeyinga,
HSÞ, var haldið á
Þórshöfn 2. maí sl.
Arnór Benónýsson
var endurkjörinn
formaður til eins
árs. Þrjár breytingar urðu í stjórn sambands-
ins. Úr stjórn gengu Einar Ingi Hermanns-
son, Jóhann Rúnar Pálsson og Linda
Baldursdóttir. Inn í stjórn komu Gunnar
Sigfússon, Ágústa Ágústsdóttir og Ingvar
Helgi Kristjánsson.
Sæmundur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri UMFÍ, sæmdi á þinginu Sölva Stein
Alfreðsson starfsmerki UMFÍ. Íþróttamaður
ársins hjá HSÞ var kjörin Hafdís Sigurðar-
dóttir.
„Það var ákveðið að slípa betur samein-
ingu HSÞ og UNÞ og láta hana virka betur. Í
starfinu hjá okkur á þessu ári ber hæst þátt-
töku okkar í Landsmótinu á Akureyri og
Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki. Það er
annars nóg um að vera í okkar starfi og við
erum bjartsýnir á framhaldið,“ sagði Arnór
Benónýsson, formaður HSÞ.
Bjartsýni í starfi HSÞ og nóg um að vera
Úr hreyfingunni
Sæmundur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri UMFÍ, sæmir Sölva Stein Alfreðsson
starfsmerki UMFÍ.
Vel sótt héraðsþing USVH á Hvammstanga
68. héraðsþing Ungmennasambands
Vestur-Húnvetninga, USVH, var haldið í
félagsheimilinu á Hvammstanga 7. apríl
sl. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, sóttu þingið. Júlíus
Guðni Antonsson og Sigurbjörg Jóhannes-
dóttir voru sæmd starfsmerki UMFÍ.
Þingið var mjög vel sótt en langflestir
þeir sem áttu rétt til þingsetu mættu.
Engin breyting varð í aðalstjórn sam-
bandsins en formaður USVH er
Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Þingstörf gengu vel og að sögn Guð-
mundar Hauks urðu nokkrar umræður um
hvernig deila ætti fjármagni milli hinna
ýmsu íþróttafélaga. Nokkur umræða var
einnig um Unglingalandsmót en sveitar-
stjórnin sér sér ekki fært að sækja um mót-
ið með USVH 2011. Guðmundur Haukur
sagði að samt sem áður hefði verið sam-
þykkt áskorun til sveitarstjórnar um að
skoða málið síðar.
Fram undan hjá USVH er að undirbúa
starfið í sumar en íþróttastarfið er mest á
vegum hinna einstöku félaga. Sambandið
stefnir á þátttöku í Landsmótinu á Akureyri
og Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki.
„Okkar starf er annars í hefðbundnum
farvegi og fjárhagurinn bara góður,“ sagði
Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ (í miðið) sæmdi
þau Sigurbjörgu Jóhannesdóttur
og Júlíus Guðna Antonsson starfs-
merki UMFÍ á héraðsþingi USVH.
Frá héraðsþingi USVH.