Ægir - 01.09.1950, Qupperneq 13
Æ G I R
187
A-vitaminmælingar á þorskalýsi voru eins
°S áður veigamesti þátturinn í sýnishorna-
rannsóknunum. Alls bárust rannsóknastof-
Unni 838 sýnishorn af þorskalýsi, sem öll
voru A-vitaminmæld. Auk þess var gerð full-
komin útflutningsefnagreining á 64 þessara
sýnishörna. Af fiskmjöli bárust stofunni 57
sýnishorn til efnagreiningar, þar af voru 30
rannsökuð vegna útflutnings. Þá voru efna-
greind allmörg sýnishorn af síldarmjöli,
karfanijöli, hvalmjöli, sildarlýsi og hvallýsi.
Gerð var fituákvörðun á sýnishornum úr
sildarförmum frá Suðvesturlandi, hvenær
sem til náðist. Prófað var þanþol í miklum
fjölda garnsýnishorna fyrir netjagerðir,
verzlunarfyrirtæki og framleiðendur. 1 því
sambandi var gerður allýtarlegur saman-
burður á innlendum og erlendum garnteg-
undurn fyrir innflutningsyfirvöldin.
Meðal sjálfstæðra verkefna, sem unnið
var að, má nefna eftirfarandi:
Framkvæmdar voru umfangsmiklar til-
raunir með bræðslu þorsklifrar. Miðuðust
þær jöfnum höndum við framleiðslu lýsis
°g nrjöls úr lifrinni. Framleidd voru lifrar-
uijölssýnishorn og þau send erlendis til
ákvörðunar á vitamin B12 og almennu fóð-
urgildi. í þessu sambandi skal þess getið,
ap rannsóknastofan tók að sér ákvörðun
lýsistapa í De Laval lifrarbræðslu, sem sett
var í hotnvörpunginn Jörund frá Akureyri.
þótti mikils um vert að fá upplýsingar um
þann árangur, sem ná mætti með tækjurn
þessúmi, þar sem þau voru þau fyrstu sinnar
tegundar hér á landi. Niðurstöður þessara
athugana liggja frammi á rannsóknastof-
unni fyrir þá, sem hafa áhuga á þeim.
Hafin var á árinu kerfisbundin rann-
s°kn á efnasamsetningu og næringargildi
yniissa nytjafiska. Var þetta gert samkvæmt
°sk Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem
°ít þarf á slíkurn upplýsingum að halda í
sambandi við afurðasölu. Gert er ráð fyrir,
a<5 rannsókn þessari verði haldið áfram þar
til fengizt hefur heildarmynd af efnahlut-
öllum í íslenzkum nytjafiskum.
Rannsóknastofan hafði á árinu samvinnu
Gð efnarannsóknastofu Síldarverksmiðja
ríkisins á Siglufirði og tæknilegan forstjóra
verksmiðjanna um framleiðslu soðkjarna
úr síldarsoði í tilraunaskyni. Lagði rann-
sóknastofa Fiskifélagsins eimingartæki til
þessara tilrauna, og sömuleiðis slcyldi einn
af starfsmönnum hennar taka þátt i fram-
leiðslutilraununum jafnframt annarri
vinnu, sem hann hafði með höndum á Siglu-
firði fyrri hluta sildveiðitímabilsins. Þátt-
taka í framleiðslutilraununum kom þó ekki
til, þar sem þær gátu ekki hafizt fyrr en
eftir brottför þessa starfsmanns Fiskifé-
lagsins, og önnuðust því starfsmenn síldar-
verksmiðjanna þær einir. Alls framleiddu
þeir 70 kg af soðkjarna á Siglufirði. Var
framleiðslan miðuð við öflun upplýsinga,
sem að haldi mættu koma við undirbúning
soðkjarnaframleiðslu við síldariðnað lands-
manna.
Að aflokinni sildarvertið framleiddi rann-
sóknastofa Fiskifélags Islands nokkurt
magn af soðkjarna úr hvalsoði frá hval-
vinnslustöðinni í Hvalfirði og sendi sýnis-
horn af honum til erlendra rannsóknastofn-
ana tiL ákvörðunar á vitamin B12 og próf-
unar á föðurgildi hans.
Reynt var eins og á undanförnum árum
að afla sem reglulegast sýnishorna af síld,
sem veiddist í Faxaflóa og við Suðvestur-
land, til fituákvörðunar. Sýnishornin urðu
þó færri en skyldi, eða 13 á timabilinu frá
21. júlí til 20. desember. Áberandi var, hve
miklu feitari síldin var á þessu ári en
nokkru sinni áður síðan rannsóknastofa
Fiskifélagsins tók að mæla fitumagn í Faxa-
flóasíld. Meðalfitumagn síldarinnar reynd-
ist’vera 21.4%, þegar undan er skilið eitt
sýnishorn af kræðu, sem rannsakað var.
Hafin var athugun á möguleikum fyrir
hagnýtingu fiskgalls. Gall úr sláturdýrum
hefur um langan aldur verið hagnýtt.
Verðlag á því hefur hins vegar til skamms
tíma verið svo lágt, að lítt hugsanlegt var,
að hægt væri að hagnýta fiskgall miðað við
sama verðlag. Nýlega hefur eftirspurn eftir
galli mjög aukizt vegna aukinnar fram-
leiðslu lyfja úr gallsamböndum. Verðlagið
hefur líka stórum hækkað, og eru nú nokkr-