Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1950, Page 32

Ægir - 01.09.1950, Page 32
206 Æ G I R jafnaði bezt til söltunar, þ. e. a. s. feitust. Erfiðleilcar sköpuðust þó af því, að síld- veiðin var svo mikil á austursvæðinu, þ. e. a. s. tiltölulega langt frá aðalverkunarstöðv- unum og því oft miklum erfiðleikum bund- ið að flytja síldina til verkunarstöðvanna, þannig að hún kæmi þangað nægilega fersk og góð til söltunar. Af norðanlandssíldinni var langmest hausskorið og slógdregið eða verkað á sama hátt og verið hefur undanfarin ár. Var það alls 40 359 tunnur eða tæplega helmingur þeirrar síldar, sem saltað var. Sykursalt- aðar voru 26 868 tunnur eða rúmlega 30% af magninu, og var það svipað og árið áður. Þá varð kryddsíldarframleiðslan 16 676 tunnur á móti 9500 tunnum árið áð- ur og loks kverkuð saltsíld venjuleg 2223, eða tæplega helmingur þess, sem verið hafði árið áður. Urn aðrar verkunaraðferðir á síld- inni var ekki að ræða að því fráskildu, að jnatjesverkað var í 30 tunnur aðeins. Af Faxaflóasíldinni, sem veiddist um liaustið í reknet, var langmest hausskorið og slógdregið eða nærri 37 þús. tunnur af tæplega 43 þús., sem saltað var í alls. Auk þess var kryddað í rúmlega 5000 tunnur, en um aðra verkun á þeirri síld var tæp- lega að x-æða. Kom það sér mjög vel, að þessi síld veiddist um haustið í Faxaflóa, þar sem unnt var að afgreiða hana upp í nokkra af þeim samningum, sem gerðir höfðu verið um sölu á Norðurlandssíld, enda var sild sú, senx veiddist i Faxaflóa seinni hluta sumars og um haustið, óvenju feit og góð til söltunar. Sildin var söltuð í 12 veiðistöðvum fyrir Norðurlandi og Austurlandi, allt frá Hólma- vík til Seyðisfjarðar. En mikill fjöldi sölt- unarstöðva annaðist verkunina, t. d. á Siglu- firði einum saman 21 stöð, enda eru þær þar langflestar. Enda þótt söltunin dx-eifðist á svo marga staði, þá var langxxiest af síld- inni saltað á Siglufirði eins og jafnan áð- ur, enda eru þar eins og áður segir söltun- arstöðvarnar flestar og mestir nxöguleikar til þess að taka á nxóti síldinni. Það olli þó erfiðleikum eins og áður getur, hversu síld- in var veidd fjarri Siglufirði og langt að flytja hana þangað. Þrátt fyrir þetta nain söltunin þar 52 569 tunnum eða 61% af þeirri síld, sem söltuð var fyrir Norður- landi um sumarið. Næst í röðinni kom svo Dalvík með 8849 tunnur eða rúml. 10% af saltsíldarmagninu, en þar hefur áður verið saltað allmikið af síld. Þar næst var Húsa- vílc með 7813 tunnur eða rúmlega 9% af heildarmagninu, þá Raufarhöfn með 7656 tunnur eða tæplega 9% af heildarmagninu, og hefur aldrei verið söltuð þar áður svo mikil síld, enda er Raufarhöfn sá staður- inn, sem næst lá veiðisvæðinu og bezt að þessu sinni, og því eðlilegt, að þangað bær- ist rneira af síld en áður. Einnig voru nú meiri möguleikar til þess að taka við síld- inni þar til söltunar en áður hafði verið. Er það greinilegt, að ef áframhald verður á því að síldin haldi sig svo mjög austan til á veiðisvæðinu sem verið hefur, þá muni síldarsöltun við norðausturland aukast og það jafnvel á fleiri stöðum en Raufarhöfn. Á Ólafsfirði voru saltaðar 2712 tunnur og í Hrísey 2129 tunnur. Veiðistöðvarnar á vesturhluta veiðisvæðisins svo senx Hólnxa- vík, Skagaströnd og Drangsnes urðu að sjálfsögðu nxjög útundan með söltun, þar sem engin síld veiddist á þeim slóðum og mun aðallega hafa verið um að ræða rek- netjasíld, sem þar var söltuð. Aðrir staðir, sem síld var söltuð á, voru Altureyri, Seyð- isfjörður og Grímsey.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.