Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1950, Page 43

Ægir - 01.09.1950, Page 43
I Æ G I R 217 5. Hraðfrysting'. Aukning freðfiskiðnaðarins hélt enn áfram a árinu, en var þó ekki mikil. Starfrækt voru '2 frystihús, og voru þar af 36 í Sunnlend- ingafjórðungi, 16 í Vestfirðingafjórðungi, Í2 á Norðurlandi og 8 á Austfjörðum. Þá v°ru nokkur hús, sem ekki tóku á móti fiski til frystingar. Einhver þessara húsa niunu þó liafa fryst sild til bcitu. Með þeim nýju húsum, sem hæltust við á árinu, og aukningu afkastagelu hinna eldri, varð nokkur viðbót við afköst frystihúsanna, þannig að láta mun nærri, að í stað 800 smál. afkasta við árslok 1048 hafi afköstin 1 urslok 1949 verið komin upp í að minnsta k°sti 850 smál. miðað við 16 klst. vinnu. Meiri fiskur fór nú til frystingar en nokkru sinni fyrr, eða alls 77 872 smál. auk 111 smál. af hrognum. Miðað við árið áður var hér ura að ræða um 1600 smál. aukningu cða rúml. 2%. Svo sem verið hefur um mörg undanfarin ar var langsamlega mestur hluti þess fisks, sem fór til frystihúsanna, þorskur, og nam hluti lians af heildarmagninu 80.5% eða lítið eitt meira en verið hafði árið áður. Næst í röðinni kom ýsan með 7.7%, sem er sama og árið áður, þá steinbiturinn með 5.4%, en það var lítið eitt minna en verið hafði árið áður, en þá var hluti hans meiri en áður hafði tíðkazt, eða 6.1%. Að stein- bítsmagnið varð minna að þessu sinni en áður, slafaði af því, að fyrirsjáanlegt var, að erfiðleikar yrðu á að selja steinbít fryst- an, og var því reynt eftir megni að draga úr frystingu hans. Hluti flatfiskanna var nú ríflegri en áður og nam alls rúml. 5.5% af heildarmagninu, en þar var hluti skar- kolans langmestur eða 3.5%, en auk þess var þykkvalúra, heilagfiski, langlúra og stórkjafta. Þessi aukning á flatfiskfryst- ingunni átti rót sina að rekja til þess, að verulegt magn hafði verið selt til Bretlands fyrir fram af framleiðslu árs- ins, og varð að leggja allt kapp á að veiða sem mest, svo að unnt yrði að ná því magni, sein um hafði verið samið, en af- greiðsla á bolfisksflökum upp i samning- inn við Breta var bundinn því skilyrði, að ákveðið hlutfall væri á milli flatfisks og bol- fisks. Aðrar fisktegundir liöfðu eins og áð-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.