Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1980, Page 18

Ægir - 01.09.1980, Page 18
..Pellyvel" fiskkassarnir hafa marga kosli fram yfir hina hefð- bundnu gerð, einkum hvað viðvíkur léllleika og þrifnaði. Með þessum fiskkössum hefur verið fundin lausn á fyrirferð tómra kassa. um sem innan í er annaðhvort felld pappaaskja eða plastbakki. Á þennan hátt hefur náðst mjög sveigjanlegur máti við notkun kassanna og full- komið hreinlæti. Ef pappaöskjur eru notaðar sparast þvottur á fiskkössunum algjörlega. Stál- teinakassarnir eru gefnir upp fyrir að þola a.m.k. 2 tonna þunga. sem ætti að vera meira en nóg að standast sjógang og slæma meðferð. Meðfram langhliðum kassanna eru listar sem falla inn þega' kössunum er staflað hver á annan með fiski í, en þegar kassarnir eru tómir, eru listarnir felldir út og falla kassarnir þá hver inn í annan og fer þá mjög lítið fyrir þeirn. Þannig mynda 50 kassar, sem staflað er tómum hver ofan í annan, aðeins 1 m háan stafla. Mustard-menn lögðu mikla áherslu á að kynna línuvélasamstæðu sína og þegar íslending rak a fjörur þeirra varð uppi fótur og fit. Ekki tók langan tíma að finna út ástæðuna fyrir þessum áhuga þeirra fyrir þjóðerninu og er skemmst frá því að segja að þen hafa aldrei náð sér á sálinni síðan íslensku línu- bátarnir köstuðu beitningarvélum þeirra í land fyr'r nokkrum árum. Enn láta þeir þess samt getið í aug" lýsingarbæklingum sínum að 9 samstæður haú verið keyptar af íslendingum. Lét undirritaður tilleiðast að fara með þeim í sýningarferð, sem farin var á um 50 tonna báti. Eftir þá bátsferð, er sá er þetta ritar, enn ekki sannfærður um að Mustarö hafi náð þeirri tækni við beitninguna að þeirra vélasamstæða eigi erindi hingað til íslands að svo komnu máli. í fljótu bragði virtist sem lítil breytmg, hefði verið gerð á samstæðunni að undanförnu- sýningaferðinni var notaður nýr og stinnur mak' ríll í beitu sem skurðarvélin þverskar, nokkuð svo groddalega. Flestir krókarnir beittust heldur ekk' endilega á þann hátt sem við viljum sjá beitu á krók, en báturinn lagði á 3-4 mílna ferð. í frekari sani' Fiskeldisbúr þessifrá „ Jamex“ eru afgreidd með öllu ti!he\ra'n s.s. handriði, flotbryggfu. múrningum og landgangi. Allh' 1 ftskeldisstöðvarinnar eru kræktir saman á sérstakan hatl ^ gefur búrunum aukinn stöðugleika i sjó, ogbetri vinnuaðslo en eru þó sveigjanleg og sterk i vondum veðrum. 466 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.