Ægir - 01.09.1980, Blaðsíða 35
straumi var í vor reyndar hærri en mælst hefur
aht síðan 1962, og einkenni. sem tengjast hafís voru
ekki að finna.
Á grunnslóð fvrir Austfjörðum var einnig hlýtt
1 sJÓnum í vor eða 3-4°, sem er sambærilegt við
i’estu árin á tímabilinu 1950-1960. Lengra úti fyrir
Áustfjörðum eða um 60 sjómílur frá landi gætti
ahrifa svalsjávarins í Austur-íslandsstraumi allt
suður á móts við straumamótin við Færeyjahrygg,
en hitastigið var þar hvergi lægra en 2°.
Astand sjávar hér við land var þannig gott vorið
1980, og mun betra en oftast síðan 1962. Á árunum
*?72, 1973 og 1974 var ástandið í sjónum við landið
e'nnig mun betra en á öðrum árum síðan 1964, en þó
ekki í sama mæli og nú vorið 1980. Upphitun og
Þa lagskipting í yfirborðslögum Atlantssjávarins
yar enn ekki mikil í vorleiðangri 1980, en hin mikla
utbreiðsla hans var í góðu samræmi við milt veður-
^ar það sem af var árinu. Er þá skemmst að minnast
Þess sem var í þeim efnum á árinu 1979 (2), er kuldi
bæði til sjávar (2. mynd) og sveita var með ein-
hæmum.
Niðurstöður vorleiðangurs 1980 sýndu einnig (3)
mikinn styrk næringarefna, gott ástand svifþörunga
og einnig átu. Þessar niðurstöður eru allar í nánu
sambandi við útbreiðslu hlýsjávarins á íslands-
miðum í vor sem leið, og gáfu þær fyrirheit um
gott árferði áfram til lands og sjávar á árinu 1980.
Sjórannsóknir í ágúst 1980 benda ekki til breytinga
í þeim efnum (3. mynd). Þó skal hafa hugfast,
að þar með er ekki sagt að árferðið árið 1981 verði
einnig milt. Um það er ekkert unnt að segja, en er á
meðan er, og áfram verður fylgst með framvindu í
sjónum umhverfis landið.
Heimildir:
1) Unnsteinn Stefánsson 1962. Norh Icelandic
Waters. Rit Fiskideildar 3.
2) Svend-Aage Malmberg 1979-80. Ástand sjávar
og fiskstofna við ísland. Ægir 72; 7,9, 11 og 73; 4.
3) Anonymous 1980. Fréttatilkynning frá Hafrann-
sóknastofnuninni, 13.6. 1980.
Rafverktakar- Rafhönnuðir
Telemecanique
Telemecanique kynnir nýja þrýstihnappa
og merkilampa XB2 (Q 22 m.m.).
Ný hönnun með færri samsetningum gefur
aukið öryggi
Fjölbreyttir möguleikar út frá sama grunni
Skrúfast fastir án aukahluta
Pakkning með spenniskrúfum gefur örugga
festu og sparar tíma
Örugg festing á allt að 6 mm þykka plötu
Öll einangrun úr hertu polyamide
Stór þrýstiflötur
Merkjalampar með BA9S undirstöðu gefa
afburóabirtu og hafa langan endingartíma
Sjálfhreinsandi rennirofi með tvöföldum
snertlum
ÆGIR — 483