Ægir - 01.09.1980, Side 27
Ir búsundum tonna af sjó á klukkustund gegnum þétt-
riðinn poka þar sem svif safnast fyrir. Það þykir
S°ður árangur ef 1.000 þorskseiði af hverjum
'00.000 lifa fram í ágúst, eða 1%, en í sjónum, hjá
náttúrunni sjálfri, er þetta hlutfall e.t.v. oft 1 á móti
00.000. Áætlað er að um 60% af þeim seiðum sem
lla frant í ágúst, nái kynþroskaaldri í sjónum.
A næstu árum verður áhersla lögð á að rannsaka
áegðun seiðanna á þessu viðkvæma skeiði þeirra,
b-e. frá því hrygning á sér stað og fram í ágúst, sam-
fera því að finna út rétta tímann til að sleppa þeim,
sem er ekki síður mikilvægt. Aðspurðir kváðu vís-
'ndamennirnir á Austevoll ekkert vera því til fyrir-
stöðu að farið væri af stað með þorskeldi hvenær
sem væri, þetta mál væri eingöngu orðið spurning
um hvort það borgaði sig fjárhagslega að setja slíkt
eldi á fót. í laxfiskaeldinu væru aðalerfiðleikarnir,
e,ns Og fyrr segir, þeir að finna út rétta samsetningu
u fóðrinu á vaxtarskeiðinu, þ.e. frá seiðum og þar til
'skurinn er orðinn fullvaxinn, og svo mætti ekki
f'eyma hinni eilífu baráttu sem háð væri gegn hinum
°trúlega mörgu sjúkdómum er á laxfiskana herjaði.
‘'Vorugt þetta ætti við með þorskinn nema að tak-
J^órkuðu leyti og reynsla þeirra af því að ala þorsk í
urum væri framar öllum vonum. Samsetning
°ðursins væri viðkvæmt vandamál á fyrsta aldurs-
skeiði þorskseiðanna, en hvað sjúkdóma snerti, þá
nefði ekki komið upp neitt það í þorskeldinu sem
'aldið hefði neinum teljandi vandræðum. Þessu til
staðfestingar var okkur bent á myndarlegan þorsk
Sem auðsjáanlega var alheilbrigður, en í næstu girð-
'ngum voru þúsundir laxa, sem voru þaktir sveppa-
§r°ðri og á mörgum þeirra var hluti af bakugganum
að étast upp. Var okkur tjáð að innan tíðar yrði að
|aka þessa laxa og hreinsa sveppagróðurinn af þeim,
bar sem hann stæði þeim mjög fyrir þrifum. Var ekki
að merkja að mönnum þætti þessi sveppasjúkdómur
a'varlegt vandamál, það væri bara tímaspursmál
Ve oft væri nauðsynlegt að hreinsa laxana, til að
°ma í veg fyrir að þeir biðu varanlegt tjón af, en
reinsunin færi fram eins sjaldan og mögulegt væri
1,1 að valda sem minnstri streitu í fiskunum, en of
mikil streita gæti valdið dauða þeirra, sem væri ekki
°algengt. Sem fyrr segir er eina ástæðan fyrir því að
nienn fara ekki út í þorskeldi í stórum stíl í dag sú,
að það er fjárhagslega hagkvæmara að veiða þorsk
með gamla laginu og menn því ekki ennþá sam-
KePpnisfærir við móður náttúru. Nýjustu fréttireru
sy° þær, að tekist hefur að frjóvga og koma á legg
nðuseiðum og binda menn vonir við það að eldi á
storlúðu komi til með að borga sig fjárhagslega, þar
Flotkvíin þar sem krœklingseldistilraunirnar fara fram. Plast-
ræmurnar í sjólokunum safna d sig kræklingsseiðum.
sem afurðir hennar eru það hátt verðlagðar á heims-
markaðinum. Hvað sem öllu líður, þá er það orðin
staðreynd, að í framtíðinni munu menngrípaæ meir
einn í vistkerfi sjávarins og koma náttúrunni til
hjálpar þar sem hún fer halloka vegna ágengni okkar
mannanna.
En það er fleira en fiskar sem gert er tilraunir með
í Austevoll og má segja að vísindmennirnir er þar
starfa, láti sér ekkert óviðkomandi er varðar lífið
í sjónum. Það verkefni sem þeir binda hvað mestar
vonir við, er kræklingseldi og hafa þeir komið sér
upp þremur flotgirðingum þar sem þessar krækl-
ingstilraunir fara fram undir stjórn Vilhelms Bjerk-
nes. í girðingunum hefur verið komið fyrir plast-
ræmum til að safna seiðum kræklingsins á. Gaf
þessi aðferð góða raun og voru þær ræmur sem
okkur voru sýndar þaktar smákræklingi, sem
áætlað er að verði markaðshæfur eftir tvö ár.
Plastræmurnar eru þaktar kræklingsseiðum, sem gert er ráðfyrir
að verði orðin að fullvöxnum kræklingi að tveimur árum liðnum.
ÆGIR — 475