Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1980, Síða 57

Ægir - 01.09.1980, Síða 57
Urn á um 100 mínútna fresti. Milli móttekinna sendinga frá gervitungli eru .hraði og stefna skips n°tuð til að reikna út staðsetningu. ^ynd 2 sýnir Wesmar TSN10 móttakarann °§ koma upplýsingarnar fram sem ljóstölur í tVeimur gluggum. Með valstilli er mögulegt að fá * »Pör“ af upplýsingum sem eru: ') Greenwich meðaltími (í klukkustundum, mínútum og sekúndum) og dagsetning (dag- setning, mánuður, ár). 2) Staðsetning skips (lengd og breidd). 3) Leiðarreikningstími (klukkustund og mínút- ur frá síðustu móttekinni sendingu) og tíma- setning næstu móttöku. Merkjastyrkleiki móttekinnar gervitungla- sendingar, (skali frá 0-100) og tíðnifrávik gervitungls, þ.e. upplýsingar um hvort mót- taka er nýbyrjuð, við miðbik eða að enda. 5) Stefna og hraði straums. 6) Réttvísandi stefna skips og sigldur hraði. Stórbaugsstefna og vegalengd til ákvörðun- arstaðar, sem stilltur er inn á tækið, eða milli tveggja ákvörðunarstaða. Val á allt að níu ákvörðunarstöðum. ^) Kompáslína og vegalengd til ákvörðunar- staðar, senr stilltur er inn á tækið, eða milli tveggja ákvörðunarstaða. Val á allt að níu ákvörðunarstöðum. ^) Stýrð stefna (segul) og áætluð tímalengd til ákvörðunarstaðar miðað við gildandi hraða og straumskilyrði. *®) Upplýsingar um númer ákvörðunarstaðar og breidd og lengd. ") Loftnetshæð í metrum yfir sjávarborði og misvísun. í]rid 2. IVesmar TSNI0 gervilunglamótiakari. Wesmar TSNI0 hefur móttökutíðni 400 MHz og nákvæmni móttöku er uppgefin 0.05 sml (um lOOm) miðað við kyrrstöðu, en til viðbótar má reikna með 0.2 sml fyrir hverja eins hnúta ganghraðaskekkju skips. Tenging móttakarans er möguleg bæði við gyroáttavita og seguláttavita, en að auki tengist móttakarinn við vegmæli. í upphafi, eftir að hafa sett inn í móttakarann upplýsingar um grófa staðsetningu og Greenwich meðaltíma (GMT) sér móttakarinn sjálfvirkt um að gefa staðsetningu út frá móttöku frá gervitungl- um svo og leiðarreikninga. Sérstakt minni með klukku varðveitir upplýsingar um GMT og stað- setningu ákvörðunarstaða þegar slökkt er á mót- takaranum (í höfn) eða þegar straumrof verður. Móttakarinn er búinn fimm aðvörunarljósum, sem gefa bæði til kynna, þegar skipið nálgast ákvörð- unarstað (gult, grænt, rautt), og hvort móttaka sendingar frá gervitungli er möguleg eður ei (grænt, rautt). Sem viðbótarbúnað, tengdan móttakaranum, býður Wesmar AP 1100 sjálfstýringu (mynd 3), sem fyrir- tækið framleiðir. Eins og fram hefur komið er mögu- leiki að hafa allt að níu punkta (ákvörðunarstaði) í minni móttakarans. Þegar AP 1100 sjálfstýringin er tengd TSN10 móttakaranum og sjálfstýringin stillt á ,,auto nav“ verður sjálfkrafa stefnubreyting þegar komið er á ákvörðunarstaði. Einnig má nefna að unnt er að fá sem viðbótarbúnað sérstakan skrifara sem varðveitir upplýsingar á pappír. Umboð hér á landi fyrir Wesmar hefur Skipa- tæki h/f, Reykjavík og skv. upplýsingum umboðs- ins er verð á TSN10 gervitunglamóttakara US $ 8.500, eða miðað við gengi um miðjan september um 4.4 mill. ísl. kr. f.o.b. Verð á skrifara er US $ 1.500 eða um 770 þús. ísl. kr. f.o.b. Mynd 3. Wesmar AP 1100 sjálfstýring. ÆGIR — 505

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.