Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1980, Síða 16

Ægir - 01.12.1980, Síða 16
anum með bifreiðum á milli vinnslustöðva. Ég lét jafnframt finna meðalafla fyrir slík svæði fyrir s.l. 4 ár, þ.e.a.s. frá 1977, og þann hluta 1980 sem fyrir hendi liggur. Við skoðuðum á hvern máta mætti framkvæma slíka svæðaskiptingu. Að sjálf- sögðu yrði aflinn eða kvótinn að byggjast á fleiru heldur en meðalafla fjögurra ára. Taka yrði tillit til þeirra breytinga sem hafa orðið á þessum tíma, t.d. á sóknargetu eða vinnslu. Mér sýndist jafn- framt koma til greina eftir að slíkur kvóti væri ákveðinn, að fela heimamönnum eins mikla heimastjórn á veiðum innan ákveðins ramma, sem sjávarútvegsráðuneytið setti, og frekast væri unnt. Ég verð að viðurkenna að ég er alláhugasamur um slíka leið. Mér satt að segja hrís hugur við þeirri of- stjórn sem mér finnst orðin á flestum sviðum fiskveiða og færð hefur verið inn í ráðuneytið. Það þarf ég ekki að rekja fyrir ykkur hér. Ég hef gjarnan viljað finna leið til þess að heimamenn gætu haft þetta meira á sínu valdi. Að sjálfsögðu yrði yfirstjórn að vera í höndum sjávarútvegsráðu- neytisins, með sér við hlið nefnd hagsmunaaðila, eins og starfað hefur, að vísu allóformlega, nú all- lengi, en hefur eftir því sem ég fæ best séð, starfað vel og verið mjög mikilvæg í allri ákvarðanatöku. Að sjálfsögðu yrði að setja þær meginreglur, sem heimamenn yrðu að fara eftir, t.d. um skiptingu á milli báta og togara o.s.frv. en hins vegar gætu heimamenn þá haft í sinni hendi fremur en ella, stjórn á einstökum þáttum eins og netaveiðum og togveiðum, annað hvort þá með skrapdögum eins og nú er eða með kvóta á togara byggt á meðalafla viðkomandi svæðis undanfarin ár. Ég skal ekki fjölyrða um þessar leiðir, þvlí eitt er það höfuðatriði sem ég legg áherslu á. Ég hef engan hug á því, ef ég má orða það svo, að bera fram stefnu sem ekki næst breið samstaða um. Það hygg ég að yrði til hins verra. Þetta eru viðkvæm mál og það er e.t.v. mikilvægast í þeim, þótt menn séu óánægðir með einhverja leið, að um hana sé þó sem breiðust samstaða. Ég hef því rætt þessar hugmyndir ýmsar, við hagsmunaaðila, að vísu ekki opinberlega, því að ég hef talið skynsamlegra að vinna þetta meira í kyrrþey. Þetta er í fyrsta sinn sem ég ræði þessi mál opinberlega. Ég hef rætt þetta itarlega við þingmannanefnd sem kjörin var að minni ósk í vor í þessu skyni, og við fjölmarga einstaklinga sem til mín hafa komið, og nefndir sem til mín hafa leitað í þessu sambandi. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að menn væru ekki tilbúnir til þess að taka upp gjörbreytta stefnu frá því sem nú er. Menn kjósa þegar upp er staðið að því er virðist, þótt allir kvarti undan skrapdaga- kerfinu, einna helst að halda svipaðri stjórn á þorskveiðum. Þess vegna höfum við í ráðuneytinu snúið okkur alfarið að útfærslu þeirrar leiðar. Síðast liðinn föstudag kvaddi ég saman fund með fulltrúum hagsmunaaðila og lét þá fá samantekt sem ég gerði sjálfur og dagsett er 20. nóvember. Ég lagði áherslu á að gera það m.a. áður en þetta þing er haldið og ýmsir mikilvægir fundir hagsmunaað- ila sem eru haldnir þessa dagana og vikurnar. Ég gerði þetta með það i huga að stefnan gæti orðið fullmótuð fyrir áramótin og legið fyrir þá árið allt. Ég ætla að rekja í sem stystu máli meginatriði þessa plaggs. Ég vil taka það mjög skýrt fram í upphafi að það sem hér er sett fram er alls ekki endanlegt, langt frá því. Ég valdi þann kostinn að taka inn fleiri atriði fremur en færri. Oft fer svo ef atriðum er sleppt þá gleymast þau en með því að setja þau á blað fæst umræða. í upphafi þessa starfs setti ég fyrir þá sem að þessu unnu, ráðuneytið og fleiri, ákveðin mark- mið. Þessi markmið eru þrjú. í fyrsta lagi verður að stefna að því að heildar- afli ársins verði sem næst því sem stjórnvöld ákveða. Að sjálfsögðu hlýtur slíkt að byggjast á til- Iögum Hafrannsóknastofnunar. Þær liggja því miður ekki fyrir enn. Ég vænti þess að það verði fljótlega. Hef ég lagt á það áherslu. Ég hef einnig lagt á það áherslu að stofnunin gefi okkur spá um þróun þorskstofnsins miðað við mismunandi veiði í nokkur ár, t.d. 5 ár. Reyndar hafa fiskifræðingar þegar látið okkur í té eins konar bráðabirgðayfirlit yfir það. Þetta er sem sagt fyrsta markmiðið, að komast sem næst því heildaraflamagni sem ákveð- ið er. Ég vil fremur ákveða það hærra og standa við það, en ákveða eins og gert hefur verið flest árin minni afla og fara langt framúr. í öðru lagi, legg ég á það áherslu að tryggja verður gæði bæði aflans og vinnslunnar. Það er markmið sem ég mun aldrei hvika frá, hver sú sem stefnan verður. Þetta má vitanlega gera með mörg- um leiðum, sem ég vík að siðar. Ég vil vekja athygli á mikilvægi þessa markmiðs. Við íslend- ingar eigum í samkeppni við margar þjóðir, sem greiða niður sínar veiðar og vinnslu miklu meira og í ríkara mæli heldur en við jafnvel þekkjum. Eg nefni t.d. Norðmenn sem verja líklega 200 mill- 632 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.