Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1980, Page 19

Ægir - 01.12.1980, Page 19
reyndar fleiri sumar hverjar, eins og það sem ég hef síðast gert að umræðuefni. Ég vil þá koma að þeim kafla sem ég nefm „þorskveiðitakmarkanir” og nefna mætti sér- hæfðar takmarkanir gagnvart þorskveiðum. í fyrsta lagi verður heildarafli ákveðinn að fengnhm tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar. Ég fagnaði því bréfi sem ég fékk fyrir nokkru frá Hafrannsóknastofnun, sem gefur til kynna að útlitið sé nú allt töluvert bjartara en áður var talið. Þetta hafa menn fengið í hendurnar og ég þarf ekki að rekja það. Ég nefni þó sem dæmi að stofnunin metur ástandið svo að jafnvel 400 þús. lesta afli í 5 ár muni ekki ieiða til minnkunar á stofninum, heldur fremur hægfara aukningar. Þetta er að sjálfsögðu gífurlega mikil breyting frá því sem áður var, þegar stofnunin taldi að jafnvel 230 þús. lesta afli gæti leitt til hruns á þorskstofninum. Á þessu eru eðlilegar skýringar, sem stofnunin gerir grein fyrir í þessu bréfi. Mælingar hennar á stærð aflans hafa sýnt að þær leiðir sem farnar hafa verið, þ.e.a.s. skyndilokanir og aukin möskvastærð, hafa orðið árangursríkari en menn þorðu að vona. Ég hygg þó að jafnframt hafi fleira ráðið þessari þróun. Það er staðreynd að það er ekki eingöngu stærð hrygningarstofnsins sem ákveður fjölda af- komenda, eða stærð þess stofns sem frá honum kemur. Vitanlega eru það ekki síður lífsskilyrðin í sjónum. Það er áreiðanlega engin tilviljun að stofninn frá 1976 er svo gífurlega stór og sterkur. Athuganir sýna að lifsskilyrðin í sjónum, þ.e.a.s gróður sjávar var óvenjumikill 1976 og sá gróður hafði borist vestur, austur og norður með landinu áður en seiðin hófu göngu sína þangað. Þarna er því miklu flóknara samspil og fleira sem ræður en eingöngu stærð hrygningarstofnsins. Ég hygg að til þess hafi ekki verið tekið nægilegt tillit. Þarna þarf meiri rannsókna við. Ég vona að það takist að fylla upp í þetta gat á þekkingarkeðjunni. í öðru lagi geri ég ráð fyrir því til viðmiðunar að þeim afla sem ákveðinn verður, ég nefni engar tölur að þessu sinni, verði skipt jafnt á milli báta og togara. Það er sú niðurstaða, sem hefur fengist í gegnum árin og virðist ætla að verða enn í ár. Þá hef ég gert ráð fyrir því að skipta árinu í þrjú fjögurra mánaða tímabil og setja viðmiðunarmörk fyrir hvert tímabil. Þetta er gert með það í huga að draga úr afla fyrri hluta ársins og birgðasöfnun sem gögn sýna að hefur öll árin verið mikil, t.d. hjá frystihúsunum og valdið hefur vandræðum. Aðeins til bráðabirgða, ég legg áherslu á það, hef ég sett á blað hugmyndir um viðmiðunarmörk, sem yrðu 50% af heildarafla í fyrsta ársþriðjungi, 25% á öðrum ársþriðjungi og 25% á þriðja ársþriðjungi. Þetta þarf að athuga nánar. Þetta merkir að draga þarf úr afla á fyrsta ársþriðjungi um 20-30 þús. lestir. Þetta þýðir fjölgun þorskveiði- banndaga hjá togurum á fyrsta ársþriðjungi. í fjórða lagi viljum við athuga hvort ekki er rétt að ákveða viðmiðunarmörk fyrir hvern árs- þriðjung, annars vegar fyrir togara og hins vegar fyrir báta. í fimmta lagi tel ég mikilvægt ef unnt er að fá meiri sveigju á milli landshluta, sérstaklega hvað viðvíkur bátaflotanum. Aðstæður fyrir bátaflot- ann eru mjög mismunandi í kringum landið. Mér sýnist ekki réttmætt að stöðva netaveiðar, þótt afli, við skulum segja SV-lands, hafi náð þeim við- miðunarmörkum sem sett eru. Því er einnig verið að skoða hvort einhver slík viðmiðunarmörk kæmu til greina, annað hvort fyrir landið skipt í tvennt, þ.e.a.s. vertiðarsvæðið annars vegar og annað svæði landsins hins vegar eða jafnvel í eitt- hvað fleiri svæði. Þá geri ég ráð fyrir því að þorskveiðar báta verði bannaðar um páska, verslunarmannahelgi og jól, eins og verið hefur og togveiðar í upphafi maí og þorskanetaveiðar frá 15. júlí til 15. ágúst. Ég geri jafnframt ráð fyrir því að netavertíð verði stytt um einn dag fyrir hverjar 1500 lestir, sem eru umfram viðmiðunarmörkin. Þetta þarf að vísu að athuga nánar ef viðmiðunarmörk verða breytileg fyrir landshluta, því að 1500 lestir eru of há tala fyrir ýmsa landshluta. Þetta er eingöngu sett fram til umræðu. Ég bið menn að athuga það. Þá geri ég ráð fyrir því að togveiðar verði bann- aðar eins og nú hefur verið um verslunarmanna- helgina og um jól og ég vil taka það fram að ég hef fullan hug á því að staðið verði við það loforð sem sjómönnum hefur verið gefið um a.m.k. 3 frídaga um jólin. Þetta hefur verið deilumál. Því miður hefur ekki tekist að ná um það samkomulagi á milli allra útgerðarmanna og sjómanna. Ég harma það. Við þetta loforð verður að standa. Það verður annað hvort gert með reglugerð eða lögum. Þá geri ég ráð fyrir því að í samræmi við skipt- ingu í ársþriðjunga eins og ég nefndi áðan að þorskveiðibanndögum togara yrði fjölgað á fyrsta ársþriðjungi til að ná þeim viðmiðunarmörkum sem ég nefndi, eða hver sem þau kunna að verða ÆCiIR — 635

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.