Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1980, Síða 24

Ægir - 01.12.1980, Síða 24
Þegar fiskurinn er orðinn 4 ára fer hann að veið- ast. Við það að friða ungfiskinn eru í stofninum hvorki meira né minna en 512 4 ára fiskar. Þyngd aflans er 293,5 kg. Veiðar halda svo áfram á þess- um árgangi, svo lengi sem hans gætir í veiðinni. Vegna stækkunar möskvans gefa þessir 1000 fiskar í stofninum 641,1 kg. af sér og er afraksturinn i þessu tilviki því 0,64 kg/nýliða. Þetta gildi 0,64 kg er aðeins einn punktur á línuriti eins og sýnt er á 1. mynd og fæst þetta gildi við ákveðna sókn (40% fiskveiðidánartölu). Með því að endurtaka svona útreikninga við mismunandi mikla sókn fæst fram ferill, sem lýsir sambandinu milli sóknar og af- raksturs nýliða fyrir ákveðna möskvastærð. Útreikningar sýna, að hámarksafrakstur 3 ára nýliða hefði aukist úr 1,68 kg í 1,93 kg. Ef þessar tölur eru margfaldaðar með meðalstærð 3 ára þorskárgangs þá fæst úr þeirri tölu varanlegur há- marksafrakstur stofnsins, einnig nefndur jafnstöðu- afli. Friðun smáþorsks hefur því leitt til þess að há- marksafrakstur stofnsins hefur aukizt um 55 þús- und tonn á ári. Hins vegar hefur þessi hámarksaf- rakstur aldrei náðst þar sem sóknin er alltof mikil, sérstaklega í eldri fisk. Með frekari minnkun sóknar mun afraksturinn aukast nokkuð (há- marksafrakstur stofnsins er talinn 450 þús. tonn á ári) en aðalávinningur sóknarminnkmarinnar er arðbærari veiðar þar sem afli á sóknareiningu geti vaxið enn talsvert. Á svipaðan hátt og reiknaður er afrakstur stofns á nýliða, er unnt að reikna út stofnstærð á nýliða, hrygningarstofn á nýliða o.s.frv. Sambandið milli sóknar og stærðar hrygningarstofns á nýliða er sýnt á 2. mynd. Friðun smáþorsks hefur og tals- verða þýðingu við uppbyggingu hrygningarstofns- ins. Þannig stefndi smáfiskadrápið hrygningar- stofninum niður i 170 þús. tonna meðalstærð en við núverandi sóknarmynstur mun meðalstærð hrygningarstofnsins verða 315 þús. tonn. Ef sókn- 640 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.