Ægir - 01.12.1980, Síða 34
Norska fyrirtækið „Lorentsenz mek. Verksted”
í Kabelvaag, vinnur um þessar mundir af fullum
krafti við undirbúning að framleiðslu afdráttar-
karls fyrir netabáta. Hugmyndina að þessari upp-
finningu á norskur skipstjóri og hefur afdráttar-
karlinn verið í notkun um borð i báti hans undan-
farna mánuði og staðist þær kröfur sem til hans
hafa verið gerðar með ágætum. Afdráttarkarlinum
er komið fyrir á þann hátt, að auðvelt er að fjar-
lægja hann með einu handtaki í þeim tilfellum að
netaflækjur eða aðrar hindranir komi upp við
dráttinn. Með tilkomu afdráttarkarls á netaveiðum
verður hægt að komast af með einum manni færra
á bátunum.
Rússar og Norðmenn hafa náð samkomulagi um
skiftingu á fiskafla fyrir árið 1981 á þeim svæðum
sem heyra undir þjóðir þessar í Hvitahafinu og við-
ar þar sem hagsmunir fara saman.
Taflan hér að neðan sýnir hina fyrirhuguðu
skiftingu í tonnum:
Færeyski úthafsrækjuveiðiflotinn hefur lokið
við að fylla upp í þann kvóta sem honum var út-
hlutað á miðunum við Vestur-Grænland, og voru
seinustu togararnir á heimleið um mánaðamótin
nóvember—desember. Heildarveiði þeirra á þessu
svæði varð 1.940,3 tonn, eða 58,3 tonnum meira
en gert var ráð fyrir. Þótti Færeyingum kvótinn
vera frekar í lægri kantinum, en veiðar þeirra í vor
við Austur-Grænland gengu það vel að þeim var
bættur skaðinn og vel það og tala þeir sjálfir um að
sá veiðiskapur hafi verið „rækjuævintýri.” Sam-
tals varð rækjuveiði þeirra við Austur-Grænland
4.143,3 tonn, og var allur sá afli óvenju stór og góð
rækja sem seldist fyrir hámarksverð.
Eftirtaldir rækjutogarar voru með mestan afla á
þessu ári, en alls tóku 17 togarar þátt i veiðunum:
Vestur- Austur- Samtals
Grœnland Grœnland
Karina 151,2 562,0 713,2
Kristina Logos . 181,9 378,3 560,2
Hvítanes 114,9 444,0 558,9
Hammershaimb 136,9 371,0 507,9
Svalbard 154,3 321,4 475,7
Grannríki Færeyinga hafa stórar áhyggjur af
hinni geysilegu aukningu sem orðin er í laxveiðum
þeirra í sjó. Samkvæmt nýjum upplýsingum mun
laxveiði danskra og færeyskra báta, i hafinu norð-
vestur og norður af Færeyjum, hafa numið a.m.k.
700 tonnum á fyrra helmingi þessa árs og er það
500 tonnum meiri afli en fyrir sama timabil í fyrra.
Fiskstofnar Heildarveiöi Heildarveiði Noregur Sovét- Önnur
1980 1981 ríkin iönd
Norskur og heimskautsþorskur 350.000 260.000 112.500 112.500 35.000
Strandveiðar Norðmanna
Þorskur 40.000
Murmansk þorskur 40.000
Ýsa 75.000 110.000 65.000 35.000 10.000
Karfi 100.000 89.000
Karfi i norsku hafsvæði .... 71.500 28.500 47.000
Loðnuveiðar að vetri 1.000.000 1.200.000 720.000 480.000
Loðnuveiðar að sumri 700.000 700.000 420.000 280.000
Kolmunni 100.000 150.000 150.000
650 — ÆGIR