Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1981, Síða 12

Ægir - 01.02.1981, Síða 12
öfuga hlið varðandi kostnað við skynsamlega nýt- ingu fiskstofnanna. Öll aukning á sóknarmætti fiskiskipastólsins er því gagnslaus. Loðnan er að vísu sérstakt tilfelli, þar sem breytingar þær, sem orðið hafa voru ekki að öllu séðar fyrir. Á s.l. ári voru meiri veiðitakmarkanir á þorsk- veiðum en nokkru sinni og þorskaflinn aldrei meiri. Þá voru Vestfjarðatogarar bundnir í verk- falli í einn mánuð á s.l. sumri. Alls var togurum gert að takmarka þorskveiðar sínar í 142 daga, þar af var algjört þorskveiðibann í 5 daga, á tíma- bilinu 20. júlí til 4. ágúst. Þorskveiðitakmarkanir bátaflotans voru og verulegar, þó með öðrum hætti væri. Þetta ásamt verðuppbótum leiddi til nokkurrar aukningar á afla ýmissa annarra botnlægra tegunda, en leiddi skiljanlega til ýmissa vandamála í úthaldi og rekstri. Þótt þessar takmarkanir hafi verið óhóflegar, ef rekstur skipanna er hafður í huga, og sýni jafn- framt, að afköst fiskiskipastólsins eru of mikil, ef miðað er við stefnu stjórnvalda til endurreisnar fiskstofna, eru hóflegar þorskveiðitakmarkanir þó ekki af hinu illa. í þessu sambandi er vert að hafa í huga hvað áunnizt hefur við nýtingu áður vannýttra fisk- stofna, svo og þeirrar skyldu, sem á okkur hvílir að fullnýta stofna fisks og annarra sjávardýra. Ekki verður hjá því komizt að nefna sérstaklega vanda — vonandi tímabundinn — loðnuflotans vegna versnandi ástands loðnustofnsins. Reynt hefur verið með misjöfnum árangri að leita honum annarra verkefna. Kolmunnaveiðar hafa enn ekki gefið þá raun, sem vænzt var. Halda ber áfram þessari viðleitni, svo og leit nýrra rækju- miða á djúpslóð. Þá verður væntanlega um sinn ekki komizt hjá því að veita loðnuskipum einhvern aðgang að botnfisk- og síldveiðum. Tafla II. sýnir hagnýtingu fiskaflans á s.l. ári og samanburðartölur frá árinu 1979. Athyglisverðust er aukning sú, sem átt hefur sér stað á ísfiskút- flutningi, saltfisk- og skreiðarverkun. Útflutningur sjávarafurða og markaðsstarfsemi gekk ekki með öllu snurðulaust á árinu, enda mikil aukning botnfiskafla. Þó verður að telja umtals- vert, hvað í raun hefur gengið án verulegra erfið- leika að ráða við í vinnslu og sölu þann mikla við- bótarafla, sem á land hefur borist á árinu 1979 og 1980. Aukning botnfiskafla var 100 þús. lestir á ár- inu 1979 og 76 þús. lestir 1980, eða samtals 176 þús. lestir á tveimur árum. Eins og fram kemur í töflu 11 var umtalsverð aukning á saltfisk- og skreiðarverkun og markaðs- verð hagstætt. Einnig var mikil aukning á útflutn- ingi ísaðs fisks. í mörgum tilfellum fékkst goú verð fyrir aflann. Aðra ástæðu fyrir þessari aukn- ingu má rekja til greiðsluerfiðleika útgerðar og fiskvinnslu víða innanlands. Ástandið var nokkuð annað hjá frystihúsununn í fyrsta lagi olli hin mikla aflaaukning fyrstu þrja mánuði ársins og raunar nokkuo lengur allveru- legri birgðasöfnun, enda þurfti nokkurn aðlögun- artíma til að breyta til milli tegunda og afurða og til að selja aukna framleiðslu. Útflutningur og sala á stærsta freðfisksmark' Tafla li. Skipling afia i verkunargreinar fþús. leslir) Botnfiskafli: 1980* 1979 Fryst 365,0 372,1 Saltað 151,6 125,6 Hert 79,1 30,1 ísað 52,5 41,9 Annað 7,1 12,7 Síldarafli: Fryst ...... ísað ....... Saltað .... Annað .... Loðnuafli: Fryst ...... Þurrkað ... Bræðsla ... Rœkjuafli: Fryst ...... Niðursuða . Humarafii: Fryst ...... Hörpudiskafli: Fryst ...... Hrognkelsi: Saltað .... A nnar afli: Fryst ...... ísað ....... Annað .... Alls Alls Alls Alls 1978 319.2 115.3 7,6 27,9 7,8 Alls ALLS 655,3 12,6 2,6 37,3 0,5 577,8 17,1 0 25,9 2,1 477,8 7,8 0 27,6 1,6 53,0 45,1 37,0 3,4 11,1 1,6 0 1,0 1,2 755,1 951,3 965J 759,5 963,6 966,7 8,6 8,5 7,0 0,6 0,3 0,3 9,2 8,8 7,3 2,4 1,4 2,1 9,0 7,8 8,7 5,8 4,1 4,1 0,2 0 0 0 62J 5,4 9,9 6,5 33,5 15,5 40,0 62,3 1.509,7 1.648,6 1.566,2 •Bráðabirgðatölur 68 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.