Ægir - 01.02.1981, Blaðsíða 26
Á s.l. ári áætluðu Norðmenn að laxeldisfram-
leiðsla þeirra yrði um 5.000 tonn og að aukningin
yrði í kringum 1.000 tonn á milli áranna 1979 og
1980, en nú er að koma á daginn að framleiðsla
þeirra á eldislaxi jókst um 50%, og verður um 7.500
tonn. Norðmönnum hefur gengið illa að spá fyrir
um framleiðslu sína á eldislaxi, og hefur fram-
leiðslan ætíð aukist meir en nokkurn hefur órað
fyrir. Ekki eru margir mánuðir síðan Norðmenn
tilkynntu að um 1985 myndi framleiðsla þeirra á
eldislaxi verða komin í 15.000 tonn, en í umræð-
um um þetta mál í Stórþinginu fyrir skömmu,
spáði Eivind Bolle sjávarútvegsráðherra því, að
nær sanni væri að gera ráð fyrir 20.000 til 25.000
tonnum af eldislaxi um miðjan þennan áratug.
Lagði hann áherslu á að nauðsyn væri að gera
langtímaáætlanir sem fyrst á þessu sviði, með tilliti
til þess hve mikinn lax markaðirnir gætu borið, án
þess að verðfall verði. Sem stendur liggja fyrir um
700 nýjar umsóknir hjá sjávarútvegsráðuneytinu
norska um leyfi til eldis á laxi og silungi. í þeim
umræðum sem fram fóru í Stórþinginu um þessi
mál, lögðu margir þingmenn áherslu á að sú
reynsla sem náðst hefur í fiskrækt, verði notuð til
að auka fjölbreytni í eldi almennt, s.s. þorsk-
eldi. Einnig var lagt til að ef svo færi að um of-
framleiðslu yrði að ræða, bæri að nota umfram-
framleiðsluna við hafbeitartilraunir.
í Noregi eru 644 fiskeldisstöðvar, en á s.l. ári var
aðeins um helmingur þeirra í rekstri vegna skorts á
hrognum og seiðum, en gert er ráð fyrir að seiða-
framleiðslan eigi eftir að aukast og að eftirspurn
verði annað frá og með árinu í ár.
Fiskafli Færeyinga varð 4.340 tonnum minni
1980 borið saman við 1979, en það ár hafði aflinn
dregist saman um 50.862 tonn miðað við 1978, svo
heldur hallar undan fæti í sjávarútv;'gi frænda
okkar Færeyinga. Árið 1978 veiddu Færeyingar
319.575 tonn, 1979 varð aflinn 268.713 tonn, en
samkvæmt bráðabirgðatölum varð heildaraflinn
1980 264.373 tonn. í yfirliti fiskveiðihagstofunnar
kemur fram að afli hefur aukist um rúmlega 1.000
tonn á heimamiðum, eða úr 96.450 tonnum í
97.531 tonn, en á miðunum við ísland, Noreg og
A-Grænland drógust veiðar þeirra saman um tæp
5.000 tonn. Allar tölur miðast við óslægðan fisk-
Að undanförnu hefur „íshúsfélag ísfirðinga”
haft með höndum tilraunir með nýja tölvustýrða
pökkunar- og samvalssamstæðu sem „Póllinn”
hf. hefur hannað í samvinnu við Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna. Tilraunirnar hófust í okt. sl-
og þykja þær hafa gefið það góða raun, að þeir
aðiljar sem að þessu standa gera fastlega ráð fyrir
að þessi vélasamstæða þyki nauðsynleg í fiskiðn-
aðinum innan skamms. Framleiðslurásin gengur
þannig fyrir sig, að fiskflökin fara fyrst í pökkun-
arvélina, sem pakkar þeim í lofttæmdar untbúðir,
sem er nýjung hér á landi og lofar mjög góðu, en
sýnishorn hafa verið send ýntsum aðiljum sem við
markaðinn vinna og ber öllum saman um að fisk-
urinn geymist ferskari með þessari pökkunarað-
ferð. Að pökkuninni lokinni, tekur samvalsvéliu
við og velur saman flakapakka í 5 punda pakkn-
ingar svo nákvæmlega, að yfirviktin verður aldrei
meir en 0,5-1,5 grömm að jafnaði. Með hand'
pakkningaraðferðinni hefur meðalfrávikið hja
frystihúsum landsins í yfirvikt á 5 punda pakning'
unum verið á bilinu 60-80 grömm, svo ljóst er að
allverulegar upphæðir sparast með notkun sani'
valsvélarinnar. Er sparnaðurinn sem hún skapar
talinn vera það mikill að kostnaðurinn við
kaupa hana og setja upp komi til með að endur-
greiðast á nokkrum mánuðum hjá meðalfrystihúsn
82 — ÆGIR