Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1981, Page 64

Ægir - 01.02.1981, Page 64
FRA TÆKNIDEILD Svartolíubrennsla Á sl. ári fór Tæknideild Fiskifélags íslands og Fiskveiðasjóðs íslands af stað með nýtt verkefni og er þar um að ræða: „Athugun á viðhaldi, bilana- tíðni og aukinni vinnu vegna svartolíubrennslu.” Segja má að upphaflega hafi verið stofnað til þessa verkefnis að tilhlutan Fiskiþings 1979, þar sem eftirfarandi ályktun um orkumál kom fram: „Tæknideildin kanni hvaða ástæður hafi valdið verulegum tjónum á vélum skipa, sem breytt hefur verið til brennslu á svartoliu og kynni niðurstöður þessara athugana fyrir eigendum skipa með sömu vélagerð.” Nánari skilgreining verkefnisins lá ekki fyrir af hálfu Fiskiþings og hefur því fallið í hlut starfs- manna Tæknideildar að skilgreina það, velja leiðir til nauðsynlegrar gagnaöflunar og vinna úr fengn- um upplýsingum. Ekki var bent á nein ákveðin vélatjón sem könnunin ætti að beinast að, né nán- ar skilgreint hvað telst verulegt tjón og hvað óveru- legt tjón, enda verður að ætla að ábendingar og óskir sem koma frá Fiskiþingi um verkefnaval hafi almennt gildi en beinist ekki að örfáum sértilfell- um. Tæknideild hefur tekið þannig á þessu verkefni, að gerð sé almenn úttekt á viðhaldi, bilanatíðni og aukinni vinnu vegna svartolíubrennslu í fiskiskip- um. Til að slík úttekt sé möguleg er nauðsynlegt að hafa yfirlit yfir umfang svartoliubrennslu í íslenzk- um fiskiskipum frá upphafi; þ.e. hvaða skip, hvernig vélabúnaður, hve lengi svartoliubrennsla hefur staðið yfir, upplýsingar um úthald, frátafir, tiðni, eðli bilana, o.fl. Könnun sem þessi krefst mikillar gagnaöflunar og hefur athyglin mest beinst að öflun upplýsinga beint frá vélstjórum viðkomandi skipa. Ákveðið var að reyna þá leið, að senda út spurningalista beint til vélstjóra og biðja þá um að fylla þá út og endursenda siðan. Dreifibréf með umræddum spurningalista var síðan sent út í september s.l. til vélstjóra allra fiskiskipa (aðallega skuttogara) sem þá brenndu svartolíu eða höfðu búnað til þess, samtals rúmlega 60 skip. Heimtur hafa verið um Rauðinúpur ÞH-160, fyrsti japanski skuttogarinn sem brennd' svartolíu. 30% og leggja starfsmenn Tæknideildar mikla áherzlu á að fá sem mest af þessum spurningalist' um inn áður en endanleg skýrsla getur litið dagsins ljós, þar sem mikill fengur er í upplýsingum fra þessum aðilum. Síðar, eða í október s.l., var ákveðið að senda u1 samsvarandi spurningalista til vélstjóra skuttog' ara, þar sem gasolíu er brennt eingöngu, til aö reyna að fá ákveðinn samanburðargrundvöll- Heimtur hafa verið nokkrar og er einnig lögð mik* áherzla á að fá þessar upplýsingar. Ef til vill hefur það aftrað einhverjum að senda inn útfyllta spurningalista að það hafi verið tah of seint, en nokkuð þröng tímamörk voru sett- Rétt er hins vegar að undirstrika að enn er tími11 stefnu að senda inn útfyllta spurningalista og i Þvl tilviki að eyðublað vanti til að fylla út, þá verðuf það sent út ef um er beðið. Auk upplýsinga frá vélstjórum viðkomaim1 skipa hefur verið leitað til útgerða skipanna, eirJ stakra vélaframleiðanda, olíufélaga o.fl., en as1 unin er að ná til sem flestra, sem á einn eða anna” hátt tengjast svartolíubrennslu. ^ Rétt er að lokum, i þessari stuttu kynningu, a undirstrika að umrædd athugun er tilraun til a varpa ljósi á þann þátt, er einkum snertir viðhaj bilanatíðni og aukna vinnu vegna svartol'11, brennslu, og ber ekki að skoða sem heildarúttekt öllum þeim þáttum sem svartolíubrennsla spannaf- Hvernig til tekst á eftir að koma í ljós, en stefn1 e að samantekt í skýrsluformi, sem send verður þelfl] aðilum, sem leggja verkefninu lið með upplýs111- um, svo og öðrum þeim sem áhuga hafa. 120 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.