Ægir - 01.03.1981, Qupperneq 10
Sjávarútvegurinn 1980
Pétur Pétursson
Þorskalýsisframleiðslan
1980
Framleiðsla þorskalýs-
is varð á árinu 1980 sam-
tals 3.722 tonn, sem er
435 tonna aukning frá ár-
inu 1979. Er þetta annað
árið í röð, sem fram-
leiðslan eykst og er aukn-
ingin frá 1978 samtals
996 tonn eða 36% á þess-
um tveimur árum. Telja
má að þessi aukning í
þorskalýsisframleiðsl-
unni stafi af tvennu: þetri nýtingu lifrarinnar úr
þeim afla sem berst svo og aukningu þorskafla.
Markaðir fyrir þorskalýsi á árinu 1980 voru góð-
ir en sú þróun til hækkunar sem varð á árunum
1978 og 1979 hefur nú stöðvast og í einstaka tilfell-
um hefur orðið vart undirboða frá Noregi. Ekki er
þó ástæða til að óttast almenna verðlækkun, þar
sem framboð af meðalalýsi virðist ætla að dragast
heldur saman í Noregi á árinu 1981.
Markaðsbreytingar hafa orðið miklar á
undanförnum árum. Fyrir útfærslu landhelginnar i
200 mílur voru Bretar og Þjóðverjar helstu keppi-
nautar okkar (á eftir Norðmönnum) á meðalalýsis-
mörkuðunum. Nú er hins vegar svo komið að Bret-
ar og Þjóðverjar kaupa meira meðalalýsi héðan en
nokkrar aðrar þjóðir, samtals nær 1000 tonnum
árið 1980. Þessi þróun markaðarins ásamt nýrri
tækni í flutningum (tank-gámar), svo og bætt
vinnsluaðferð, hafa gert lýsisútflytjendum kleift að
auka meðalalýsisútflutning úr 1200 tonnum 1978 í
2200 tonn 1980 eða 83% aukning á tveimur árum.
Eins og menn vita er meðalalýsi verðmætasta
tegund þorskalýsis og aukin hlutdeild þess í út-
flutningi þorskalýsis gefur aukna möguleika til
hækkunar lifrarverðs. Sú hefur lika orðið raunin
á, þar sem lifrarverð hækkaði um 73% milli ar-
anna 1978 og 1979 en um 64% milli áranna 1979 og
1980 eða 184% á þessu tveggja ára tímabili. Er si>
þróun ánægjuleg og hefur átt verulegan þátt 1
bættri nýtingu þeirrar lifrar sem að landi kemur-
Töluverð umræða hefur verið í gangi bæði her-
lendis og erlendis um áhrif fjölómettaðra fitusýra^
hjarta- og æðasjúkdóma. Benda rannsóknir ti
þess að kaldhreinsað þorskalýsi sé mjög til þesS
fallið að draga úr þessum sjúkdómum, enda verð'
ur þess nú meira vart að vítamíninnihald lýsisinser
orðið að aukaatriði í augum margra kaupenda
meira er lagt upp úr hinum almennu gæðum frt'
unnar þ.e. lit, sýruinnihaldi og bragði. Hér á eft'r
birtist tafla sem sýnir sundurliðun á framleiðslu oS
útflutningi þorskalýsis síðustu 5 ára. Einnig er
til
fróðleiks línurit um verðsveiflur búklýsis á árinu
1980 svo og tafla um heildarframleiðslu búklýstS
1978 og 1979 ásamt lista yfir helstu innflut11'
ingslönd.
Lýsishersla
Á síðastliðnu ári var brotið blað í sögu lýslS
herslu hérlendis. Útflutningur sem byrjaði í srria,
um stíl 1979 varð 1808 tonn á árinu 1980 og er 111
130 —ÆGIR