Ægir - 01.03.1981, Blaðsíða 22
vertíð 1980 og vetrarvertíð 1981, fór strax að bera
á þeirri skoðun meðal útvegsmanna loðnuskipa að
eðlilegt væri að koma á einhvers konar kvótaskipt-
ingu. Samkomulag íslendinga við Norðmenn gerði
ráð fyrir því að hlutur Norðmanna yrði 115 þús.
tonn, en íslendinga 658 þús. tonn. Á tveim fund-
um sem L.Í.Ú. hélt með útgerðarmönnum loðnu-
skipa var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða að hafa kvótaskiptingu á loðnuveiðun-
um.
Sú aðferð sem varð ofaná byggðist á þvi að
hverju skipanna, en þau voru 52, skyldi úthlutað
kvóta á eftirfarandi hátt:
1. Helmingi heildarkvótans skipt jafnt niður á
. einstök skip.
2. Hinum helmingnum skipt í hlutfalli við burð-
argetu skipanna.
Loðnuveiðarnar hófust síðan þann 5. sept.
Loðnuverðsákvarðanirnar.
í ágústmánuði hófust umræður í Verðlagsráðinu
um loðnuverð fyrir haustvertíðina. Var verðá-
kvörðuninni fljótlega vísað til yfirnefndar Verð-
lagsráðsins. Þann 3. september var verðið ákveð-
ið af fulltrúum seljenda og oddamanni gegn at-
kvæði fulltrúa kaupenda. Verðið var ákveðið
31.45 kr./kg. og var það nokkuð nálægt þvi verði
sem fulltrúar útvegsmanna töldu fullnægjandi
meðalverð (32.33 kr./kg). Þessu verði var síðan
sagt upp þann 1. október og náðist samkomulag í
ráðinu um 33.50 kr./kg.
Framangreind verð eru m.v. 16% fitu og 15%
þurrefnisinnihald.
Á undanförnum 3 árum hefur loðnuveiðunum
verið skipt í 2 verðtimabil á hverju ári og er t.d.
vetrarvertíð látin ná yfir 5 fyrstu mánuði ársins en
sumar- og haustvertíðin 7 síðustu mánuði ársins. Á
þessu ári kemur síðan síldveiði loðnuskipanna og
dregur hún úr þeim tíma sem loðnuveiðarnar
sumar og haust eiga að dekka.
Við verðákvörðun í sumar var m.v. að loðnu-
skipin lönduðu um 400 þús. lestum til áramóta þ.e.
eftir yrðu um 270 þús. lestir á vetrarvertið 1981 og
eru framangreind verð m.v. framangreindan heild-
arafla (þ.e. meðalafla á skip um 8500 lestir til
áramóta).
í október s.l. fóru hins vegar norskir og íslenskir
fiskifræðingar í rannsóknarleiðangur og varð
niðurstaðan sú að kvóti hvers skips var skorin
niður um 30%, frá því sem áður hafði verið á-
kveðið. Þessi niðurskurður kemur því fyrst og
fremst fram í afkomu flotans á fyrri hluta ársins
1981. Þannig var meðalkvótinn fyrst ákveðinn um
12.600 tonn á meðalskip. Allt útlit er fyrir að
meðalskipið nái þeim meðalafla á úthaldsdag, setfi
ráð var fyrir gert í loðnuverðsákvörðuninni og na:
þannig um 8000 tonna afla til áramóta. Niður-
skurðurinn á meðalskipið nemur um 3900 tonnunt.
þannig að meðalskipið kemur til með að eiga um
700-1000 tonna loðnukvóta eftir áramót. Það
því ljóst að m.v. óbreyttan heildarkvóta af loðnu
er rekstur loðnuskipanna og þá sérstaklega þeirra
sem ekki geta með góðu móti stundað netaveiðar a
vertíð, gjörsamlega vonlaus. Hér á eftir er sýnd
rekstraráætlun loðnuskips m.v. það að viðkoiU'
andi skip hafi lokið loðnukvóta sínum fyrir áramot
þ.e. sú loðna sem með er reiknað miðast einvörð-
ungu við afla síðari hluta ársins.
Lausleg rekstraráœtlun loðnuskips m.v. ársrekstW
og skilyrði í október 1980.
A. Tekjuralls......................... 564.137
1. Loðna.......................... 292.050
2. Þorskafli á vetrarvertíð ...... 117.600
3. Jafngildi 150 tonn þorskur í
troll............................ 37.410
4. Síldarafli ..................... 25.500
1-4 samtals á skiptaverði .... 472.560
5. Stofnfjársjóður................. 47.256
6. Olíugjald ...................... 35.442
7. Greiðsla tryggingasjóðs ......... 8.879
B. Gjötdalls.......................... 657.059
1. Aflahlutir...................... 186.040
2. Tryggingarskipverjao.fi. ... 8.775
3. Olíukostnaður .................. 99.139
4. Veiðarfærakostnaður......... 71.226
5. Trygging skips.................. 25.369
6. Annar breytilegur kostnaður . 26.735
Samtals breytilegur kostnaður ......... 417.284
7. Viðhald, viðgerðir.............. 65.200
8. Afskriftir ..................... 84.375
9. Vextir ......................... 90.200
H. Hagn/tap ........................... +92.922
H/A 100 ............................ -h 16,47%
Ath. 100 tonna frávik í þorskafla á vetrarvertíð hefur urn
m.kr. nettó áhrif á afkomu í för með sér.
Forsendur framangreindrar rekstraráætlm1^
eru skilyrði í október 1980, þ.e. ekki eru tekn^
með í áætluninni hækkanir á kostnaði frá ÞeI ,
tíma. Einnig er reiknað með þeim fiskverðum sem
gildi voru til áramóta. ^
M.v. framreikning á verðlagi í janúar 1981
ljóst, að staða loðnuskipanna hefur versnað vem
lega frá framangreindinni áætlun.
142 — ÆGIR