Ægir - 01.03.1981, Page 39
Hið fyrsta Fiskiþing var háð á árinu 1913. Kom
Fiskiþing lengi vel saman annaðhvort ár og stóð í
2-3 vikur, eða þar til skömmu eftir 1970 er ný lög
^lagsins tóku gildi. Frá þeim tíma hefur Fiskiþing
Ver’ð háð á hverju ári og stendur í 5-6 daga.
Fljótlega voru stofnaðar félagsdeildir í hinum
yntsu verstöðvum og efnt til skipulagðra fjórðungs-
°g deildafunda, þar sem hagsmunamál eru rædd og
alyktanir gerðar. Þessir fundir voru og eru mikil-
v®gur aðdragandi og undirbúningur Fiskiþings.
k>ýðingarmikill þáttur í félagsstarfinu á fyrstu
arum þess og er tvímælalaust enn, var starfsemi
ermdreka og ráðunauta og trúnaðarmanna í hverri
Verstöð. Er vandséð hvernig félagið hefði getað
omið áleiðis mikilsverðum hagsmunamálum sjáv-
arútvegsins, ef þeirra hefði ekki notið við.
Stofnun Fiskifélagsins sýndi, að verkefnin voru
Uæ§- Fiskifélagið hefur frá fyrstu tíð átt frum-
'vmði að eða á annan hátt átt þátt í að hrinda í
ramkvæmd ýmsum merkilegum og þýðingarmikl-
um hagsmunamálum sjávarútvegsins. Má í því
sambandi nefna mótornámskeið félagsins, sem
segja má að reynzt hafi ómetanleg fyrir vélbátaút-
gerð landsmanna. Síðar, eða fyrir um 20 árum,
voru þau sameinuð Vélskóla íslands. í tengslum
við mótornámskeiðin hófust ráðunautastörf fé-
lagsins, fyrst í vélfræði, síðar í skipasmíðum. Auk
mótornámskeiðanna, beitti félagið sér fyrir nám-
skeiðum í stýrimannafræðum (hið minna próf),
sjóvinnu (netaviðgerð, bætingar o.fl.), hjálp í við-
lögum o.fl. Á stríðsárunum fyrri annaðist félagið
olíuverzlun fyrir útveginn. í upphafi heimsstyrj-
aldarinnar fyrri var ráðinn viðskiptaerindreki í
þjónustu félagsins með búsetu erlendis. Félagið
hafði mótornámskeið með höndum í rúmlega 50 ár
og brautskráði hundruð vélstjóra fyrir vélbátaflot-
ann. Hins vegar lagði Vélskólinn á þessu tímabili
megináherzlu á menntun vélstjóra fyrir togaraflot-
ann og farskipin.
Afskipti félagsins af vísindalegum rannsóknum í
Ö/ r ^iisson- fiskimálastjóri, flytur rœöu sírta á hátíðarfundi stjórnar Fiskifélags fslands. Á hœgri hönd hans situr Davíð
en LSSon• ^eðtahankastjóri og fyrrum fiskimálastjóri og á vinstri hönd Lúðvík Kristjánsson, rithöfundur og fyrrum ritstjóri Ægis,
eir voru á þessum hátíðarfundi útnefndir heiðursfélagar Fiskifélags Islands.
ÆGIR — 159