Ægir - 01.03.1981, Blaðsíða 40
Frá hátíðarfundi Fiskifélags íslands á 70 ára afmceli þess.
Fiskimálastjóri, Már Elísson í rœðustól, en honum til hvorrar
handar nýútnefndir heiðursfélagar, þeir Davíð Ólafsson og
Lúðvik Kristjánsson, ásamt stjórn Fiskifélags Islands.
þágu fiskveiða og fiskiðnaðar hafa verið löng og
farsæl. Beitti félagið sér snemma fyrir kerfis-
bundnum haf- og fiskirannsóknum. Á árinu 1935
hófust fiskiðnaðarrannsóknir á vegum félagsins.
Nú er ekki ætlunin að flytja hér skýrslu um öll
þau mál, sem Fiskifélagið hefur haft afskipti af
með einu móti eða öðru, eða að gera grein fyrir öll-
um þeim ályktunum og tillögum, sem Fiskiþing
hefur látið frá sér fara frá upphafi, en fjölmargar
þeirra hafa verið upphafið að og hvati til fram-
kvæmda í margvíslegum hagsmunamálum sjávar-
útvegsins.
í Fiskiþingstíðindum 1913 er þess getið að Fiski-
félagið hafi á árinu 1912 tekið við útgáfu tímarits-
ins Ægis, sem fyrst var stofnað af Matthíasi Þórð-
arsyni á árinu 1905. Gaf Matthías Ægi út í fjögur
ár eða til 1909. Síðan varð hlé á útgáfu þar til
Fiskifélagið tók við henni, fyrst undir ritstjórn
Matthíasar. Á árinu 1914 tók Sveinbjörn Egilsson
við ritstjórn. Varð hann jafnframt starfsmaður fé-
lagsins það ár. Matthías hverfur skömmu síðar til
Evrópu, þar sem hann gerðist viðskiptafulltrúi í
starfi hjá Fiskifélaginu. Sveinbjörn er ritstjóri
ásamt öðrum störfum til ársins 1937, að Lúðvík
Kristjánsson tók við. Var hann ritstjóri til ársloka
1954 að Davíð Ólafsson tók við og hafði ritstjórn á
hendi til 1967. Verður hér ekki rakið hvílíkum
fróðleik Ægir hefur miðlað íslenzkum sjávarút-
vegsmönnum um langt árabil. Þá tók Fiskifélagið
við útgáfu Sjómannaalmanaks á árinu 1925 og
hefur gefið það út síðan.
í sambandi við þessa fræðslustarfsemi hafa frá
upphafi verið gefin út ýmis fræðslurit, handbækur
og kennslubækur, sem of langt yrði upp að telja,
auk greina í Ægi. Fiskiþing hefur ávallt látið
fræðslumálin sig miklu skipta.
Auk þess að stýra fræðslumálum voru vélfræði-
ráðunauturinn og menn hans virkir sem ráðgjafar
útgerðar í ýmsum tæknimálum. Bötnuðu skilyrði
félagsins mjög í þessu efni, er Bárður Tómasson
skipaverkfræðingur réðst til félagsins á stríðsár-
unum síðari, svo og Flörður Frímannsson raf-
magnsverkfræðingur, sem hóf störf við fiskleitar-
tækjanámskeiðin og síðar sem fastur starfsmaður
félagsins. í þessu sambandi skal ekki gleymt af-
skiptum Fiskifélagsins af endurnýjun fiskiskipa-
stólsins á nýsköpunarárunum og síðar.
Tæknideild Fiskifélagsins, sem starfar í náinni
samvinnu við Fiskveiðasjóð, er verðugur arftaki
þessara manna. Hafa starfsmenn Tæknideildar-
innar, auk starfa fyrir Fiskveiðarsjóð, einkum
snúið athygli sinni að orkumálum sjávarútvegsins,
orkusparnaði og orkunýtingu, auk almennrar ráð-
gjafar í tæknimálum.
Ýmis rannsóknarstörf fyrir sjávarútveginn önn-
ur en að framan eru nefnd hafa ávallt verið mjög á
dagskrá hjá Fiskiþingi, svo sem fiskrækt í ám og
vötnum, sem rekja má til ársins 1917 og var studd
af félaginu um margra ára skeið. M.a. starfaði
Pálmi Hannesson rektor á vegum félagsins í þessu
efni. Innlendar haf- og fiskirannsóknir, þar sern
Bjarni Sæmundsson vann ómetanlegt brautryðj-
endastarf, urðu um skeið þáttur í starfi Fiskifélags-
ins, er Árni Friðriksson fiskifræðingur réðst til
þess á árinu 1931. Fiskiðnrannsóknir hófust hjá
Fiskifélaginu um svipað leyti er Þórður Þorbjarn-
arson hóf störf hjá félaginu.
Þótt þessi störf séu nú innt af höndum hja
öðrum stofnunum, fylgist stjórn Fiskifélagsins ná-
ið með og á aðild að stjórn þeirra. Eru þessi mál
jafnan á dagskrá Fiskiþings.
Fyrir nokkrum árum hóf Fiskifélagið á ný af-
skipti af fiskræktarmálum og fiskeldi í sjó. Er nú
starfandi hjá félaginu sérfræðingur í fiskeldismál-
um.
Afskipti félagsins af vita- og hafnarmálum hafa
verið löng og árangursrík, þegar til lengri tíma
litið. Félagið styrkti á sínum tíma bryggjusmíði og
lendingarbætur. Þá vann stjórn félagsins með
verkfræðingunum Kirk og Th. Krabbe að því að
koma skipulagi á í vita- og hafnarmálum og sarnd>
skýrslu samkvæmt beiðni stjórnvalda „viðvíkjandi
160 —ÆGIR