Ægir - 01.03.1981, Side 62
NÝ FISKISKIP
Jón Á Hofi ÁR-62
3. nóvember s.l. bœttist við flotann nýtt fiski-
skip sem keypt er notað frá Finnlandi. Skip þetta
sem áður hét Saukko III er smíðað hjá Flekkefjord
Slipp & Maskinfabrikk A/S íFlekkefjord í Noregi
árið 1969 og er smíðanúmer 93.
Skip þetta er smíðað eftir teikningu frá Anker-
consult A/S sem er þekkt hérlendis, en á árunum
1966—1967 voru 10 fiskiskip (síldveiðiskip)
smíðuð eftir þessari frumteikningu fyrir íslend-
inga. Fimm þessara skipa voru byggð hjá tveimur
norskum stöðvum, þ.e. Ankerlokken Vœrft (Örn
RE fyrra skipið) og Flekkefjord Slipp (Brettingur
NS fyrsta skipið), en hin fimm voru byggð í
Hollandi (Ásgeir RE fyrsta skipið). Fyrirkomulag
varþó breytilegt íþessum 10..systurskipum”. Rétt
er að nefna sérstaklega að umrætt skip er smíðað
skv. meiri styrkleikakröfum en fyrrnefnd skip, þ.e.
IS—B í stað IS—C, enda smíðað fyrir finnska
eigendur.
Aður en skipið kom til landsins voru gerðar
breytingar á því í Noregi. Þessar breytingar voru
m.a.: lenging á hvalbaksþilfari; breyting á lestar-
lúgufyrirkomulagi, einangrun og klœðning á lest
ásamt nýjum lestarbúnaði, þ.e. áluppstilling og
kæling; bœtt við hjálparvindum (Brattvaag) og
settur nýr tœkjabúnaður í brú.
Jón Á Hofi ÁR er í eigu Glettings h/f í Þorláks-
höfn. Skipstjóri á skipinu er Jón Björgvinsson og
1. vélstjóri Lárus Friðriksson. Framkvæmdastjóri
útgerðar er Þorleifur Björgvinsson.
Almenn lýsing:
Skipið er byggt úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki
Deep Sea Fishing, Ice B, »i< MV. Skipið er með eitt
þilfar stafna á milli, lokaðan hvalbak að framan
og yfirbyggingu og brú að aftan, og er búið til
nóta- og netaveiða.
Mestalengd .......................... 37.69 m
Lengd milli lóðlína.................. 34.07 m
Breidd ............................... 7.60 m
Dýpt að þilfari ...................... 3.95 m
Lestarrými ...................... ca. 280 m3
Brennsluolíugeymar ..................... 89 m3
Ferskvatnsgeymar ....................... 27 m3
Rúmlestatala .......................... 276 brl.
Skipaskrárnúmer....................... 1562
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fimm
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir brennsluolíu; íbúðir
framskips (lúkar) ásamt botngeymi fyrir brennslu-
olíu; fiskilest með botngeymum undir lest fyrir
brennsluolíu; vélarúm með siðugeymum fremst
fyrir brennsluolíu og hágeymum aftast fyrir fersk-
vatn; íbúðir afturskips (káeta) og aftast skutgeymF
fyrir ferskvatn og rúm fyrir stýrisvél. Fremst >
fiskilest er asdikklefi og keðjukassar. í botngeymi
undir íbúðum framskips eru göng fyrir fremri hlið'
arskrúfu, en aftari hliðarskrúfugöng liggja undu
íbúðum afturskips.
í hvalbak eru geymslur fyrir veiðarfæri o.fl- °S
snyrtiaðstaða. Yfirbygging á þilfari að aftan nmr
út í síður og er gangur í s.b.-síðu, en aftan vi
yfirbyggingu er nótakassi. í yfirbyggingu eru íbúð-
ir.
Fremst á bátaþilfari er brú skipsins, þ.e. stýns'
hús fremst, þá kortaklefi og svefnklefi fyrir einb
mann. Frammastur með bómu er rétt aftan V1
hvalbaksþil og snurpigálgi nokkru aftar í s.b.-síðu-
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er frá Wichmann Motorfabrikk
A/S, gerð 6ACAT, sex strokka tvígengisvél með
forþjöppu og eftirkælingu, sem skilar 900 hö vi
350 sn/mín. Vélin tengist gegnum kúplingu skiph'
skrúfubúnaði frá Wichmann. Skrúfa skipsins er
3ja blaða úr ryðfríu stáli.
Við fremra aflúttak aðalvélar tengist deilig'r’
með innbyggðri kúplingu, frá Frank Moh11
(Framo) af gerð GD 2, aflyfirfærsla 445 hö, me
úttök fyrir sex vökvaþrýstidælur, sem eru fyfU
hliðarskrúfur, vindu- og kraftblakkarbúnað. Fyrl|.
hliðarskrúfur eru tvær Vickers vængjadælur 3
gerð 50 V, 130 hö við 1450 sn/mín; fyrir lágþrýstl
knúinn vindubúnað eru tvær Norwinch P 31 ure
ur, 70 hö við 320 sn/mín; og fyrir kraftblakkar
182 — ÆGIR