Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1982, Side 14

Ægir - 01.03.1982, Side 14
5. mynd. Bátur, hannaður til seiðaflutninga. ar. Stór sumaralin seiði 10—12 g yrðu þá tekin úr eldisstöð í ágústmánuði, og þau seiði síðan alin fram á næsta vor. Með þessu móti fengjust ef til vill betri og ódýrari hafbeitarseiði en ella. Ef hafbeit þróast og verður fjárhagslega hag- kvæm í Lóni, virðast aðstæður þannig að hægt verði bæði að sleppa og taka á móti miklu magni af laxi. Lítil reynsla er fengin af hafbeitartilraun- um á Norðurlandi. Fyrstu sleppingar Fiskifélagsins í Lón sumarið 1978 virtust lofa mjög góðu og veiddust í net samtals tæp 6% og var sá lax að mestu stórlax (2 ár í sjó). Seinni sleppingar hafa ekki skilað eins góðum árangri og sumarið 1981 endurheimtust aðeins um 1 % af seiðum sem sleppt var. Það virðist því Ijóst, að enn mun taka nokkurn tíma að þróa réttar aðferðir og fá fram heppilega hafbeitarstofna, þannig að hafbeit verði fjárhags- lega arðbær í Lóni. Nú eru í eldi um 40 þús. laxar á vegum ISNO h.f. Þá var sleppt á vegum sömu aðila 20 þús. laxa- seiðum til hafbeitar í Lóni. Björn Jóhannesson: Um úthafsveiðar Færeying3 og heimaveiðar laxa- landanna við austanvert Atlantshaf i. Laxveiðar Grænlend- inga og Færeyinga á út- hafinu eru mörgum áhyggjuefni. Er ört vax- andi laxveiðar við Fær- eyjar s.l. tvö ár bættust við Grænlandsveiðarnar, varð strax vart mikillar aflarýrnunar í öllum laxalöndum við austan- vert Atlantshaf. Sem dæmi mætti nefna, að laxafli íra sumarið 1981 um Vi af aflanum 1975, og veiðin í Vopnafjah^ ánum 1981 var um 15% af meðalveiði sumr3”1 • 1977—79. Og þá er að vonum spurn, hver m'j1, þáttur Færeyjaveiðanna í ört minnkandi genS y heimaslóðir laxins í þessum löndum. Um þeha e, uppi mismunandi getgátur, t.d. telja laxasérfr^ ingar Veiðimálastofnunarinnar íslensku, að ve' arnar við Færeyjar eigi litla sök á umræddum afl» bresti, heldur sé hér um að kenna kalda sumrl 1979. Þó að gögn séu að vísu af skornum skam^ til raunhæfs mats á þessu atriði, má töluvertra ^ af þeim aflaskýrslum sem fyrir liggja, svo sem skal rakið. II. Samkvæmt upplýsingum sem ég hefi getað afl3 um heildarveiðar laxalandanna við norðanvert A antshaf á sumrinu 1981, hafa þær verið um 5- tonn. Þessi lönd eru: Bandaríkin, Kanada, Isl^ írland, Skotland, England, Noregur og Svíþj0 Veiði Grænlendingar á umræddu tímabili 111 ^ hafa verið rösk 1.200 tonn, og Færeyingar H11 gefið upp 1.065 tonna afla á þeirra yfirráðasvm ’ loks er reiknað með 100—200 tonna veiði Fmre,^ inga og Dana á alþjóðasvæðinu norðaustur at 118 —ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.