Ægir - 01.03.1982, Blaðsíða 18
skilyrðum (fæðu, straumi, hita o.s.frv.). Þetta er
vegna þess að hann þarf að ná ákveðinni stærð og
þroska. Laxaseiði á leið til sjávar að vori eru því öll
af svipaðri stærð, 11—13 sm er algengast. Laxinn
dvelur í sjó ýmist 1 ár, og er þá 2—3 kg þegar
hann kemur aftur, 2 ár og er 4—7 kg við heim-
komu. Stærri laxar hafa dvalist enn lengur i sjó en
í flestum ám eru þeir tiltölulega sjaldgjæfir. Mest-
ur hluti laxins hrygnir aðeins einu sinni. Lax sem
dvalið hefur eitt ár í sjó er nefndur smálax. Það er
athyglisvert að í ám þar sem laxagöngur eru sam-
settar úr smálaxi og stórlaxi í nokkuð jöfnum hlut-
föllum, er meginhluti smálaxins hængar, en flestir
stórlaxanna hrygnur. Mjög stórir laxar eru oftast
hængar.
Rannsóknargögn og aðferðir.
Teknar voru til athugunar veiðiskýrslur úr 12
laxveiðiám á svæðinu frá Laxá í Aðaldal að Breið-
dalsá. í þrem þeirra, Selá, Vesturdalsá og Hofsá í
Vopnafirði voru rannsakaðar veiðiskýrslur allt
aftur til 1969, í hinum ánum var ekki farið eins
langt aftur. í veiðiskýrslunum er m.a. að finna
upplýsingar um þyngd allra veiddra laxa, en af
þyngdinni er unnt að geta sér til með nokkurri ná-
kvæmni hversu lengi hver lax hefur dvalið í sjó. Sú
regla var viðhöfð að lax 3,5 kg og léttari var talinn
eins árs úr sjó (smálax) en lax 4,0—7,0 kg var tal-
inn hafa dvalið tvö ár í'sjó (stórlax). Stærri löxum
var sleppt, enda eru þeir viðast lítill hluti aflans.
Undantekning er Laxá í Aðaldal þar sem verulegur
hluti aflans er 7,5 kg og þyngri.
Tafla 1. Fjöldi veiddra laxa á 7 kg árin 1969-1981
í Vopnafjarðarám.
Vesturdalsá Selá Hofsá
Fjöldi veiddra Fjöldi veiddra Fjöldi veiddra
Ár smálax stórlax smálax stórlax smálax stórlax
1969 59 52 204
1970 240 57 193 192 327 308
1971 120 220 103 186 201 283
1972 136 101 116 112 462 244
1973 108 126 173 201 606 462
1974 194 100 363 191 551 588
1975 137 205 258 260 487 534
1976 196 118 634 185 823 345
1977 352 187 837 581 725 486
1978 132 339 329 955 309 865
1979 149 114 376 362 263 308
1980 16 121 53 538 36 490
1981 33 7 158 27 105 23
Smálax: lax á 3.5 kg.
Stórlax: lax 4,0—7,0 kg.
122 — ÆGIR
Fjöldi
veiddra
veiddra
veiddra
oef°
Aldursákvarðanir á löxum úr Selá voru e ,ji
með hefðbundnum rannsóknum á hreistn ,)V
leigutaki árinnar safnaði og sendi Veiðimál^ til
uninni til rannsóknar. Niðurstöður eru nota