Ægir - 01.03.1982, Side 40
sér í lagi næsta haust, þegar vorseiðin verða
veiðanleg, og þá um leið aldursskiptinguna milli
seiðahópanna.
í von um að geta lagt fram reynslu og marktæk-
an árangur þegar tímar líða til eflingar fiskrækt-
inni verður haldið áfram rannsóknum á laxastofni
Elliðaánna. Seiðamagnsmælingum verður fram
haldið vor og haust og þegar sérstök tilefni gefast.
Gönguseiðagildrunni við teljarakistu verður komið
á sinn stað, og ákaflega brýnt er að setja upp slíka
gildru neðan við Elliðavatnsstíflu, því svæðið þar
fyrir ofan er i raun algerlega óþekkt stærð hvað
varðar seiðaframleiðsluna. Fullorðinn lax verður
merktur og svo ýmislegt fleira, allt í þeim tilgangi
sem getið er um í upphafi erindis míns, ,,að kanna
ástand laxastofnsins í Elliðaánum og hagkvæm-
ustu nýtingu hans.“
Viðauki
Síðan erindi þetta var flutt hefur rannsóknum
verið haldið áfram. Gönguseiðagildran var sett á
sinn stað um miðjan maí 1981 og veiddi gildran
rúmlega 3000 seiði. Þessi fjöldi er umtalsvert lægri
en búist var við, og ef einungis hefur verið um þessi
gönguseiði að ræða má búast við að laxagöngur í
Elliðaár sumarið 1982 verði með minnsta móti. Á
hitt ber að lita, að sá möguleiki er vissulega fyrir
hendi að ein seiðaganga hafi farið framhjá áður en
gildran var sett niður, eins hitt að eitthvað magn
seiða hafi farið um Vesturkvísl, en talsvert vatn
rann þar um meiri part maímánaðar, og engar ráð-
stafanir höfðu verið gerðar til þess að veiða seiðin
þar. Eins er ekki vitað með vissu ennþá hve vel
gildran veiðir.
Ekki er lokið við að reikna út niðurstöður raf-
veiðanna s.l. sumar. Þó virðist aldursskipting seið-
anna vera í betra ástandi s.l. sumar en árið þar
áður. Ef borin er saman veiði á sama veiðistað
haustin 1980 og 1981 er staðan þannig:
0 + 1 + 2+ : 0 + vorgömul seiði
1980 715 78 7 : 1 + ársgömul seiði
1981 224 109 29 : 2 + 2ja ára seiði
Sama tilhneiging virðist vera á öðrum veiðistöð-
um, en eins og áður sagði er ekki enn búið að vinna
úr gögnum frá sumrinu 1981, en við fyrsta yfirlit
virðast 2 + seiðin vera talsvert fleiri en 1980, og því
hægt að búast við betri heimtum á sjógönguseiðum
vorið 1982 en raunin varð 1981.
Árni ísaksson:
Laxeldi sem atvinnugrein
góðan, fjárhagslegan
Inngangur
Á síðasta áratug hafa
orðið mjög stórstígar
framfarir í laxeldi víða
um heim. í nágranna-
löndum okkar, bæði í
Noregi og Skotlandi, hef-
ur verið lögð megin-
áhersla á að fóðra laxinn
upp í söluhæfa stærð í
flotkvíum og eldistjörn-
um, og hefur þessi
atvinnugrein nú komist á
grundvöll, einkum í Noregi. ,
í löndum, sem liggja að Norður-Kyrrahafi, Pe ^
ur megináhersla verið lögð á hafbeit, eða „salh1
ranching“, með Kyrrahafslax, sem byggist á ÞV13
ala laxaseiði í göngustærð og sleppa í sjó, þat se,r
náttúran tekur við og elur laxinn, uns hann sn.,
aftur á sleppistaðinn sem fullvaxinn fiskur-
Japan og Alaska er um arðvænlegan atvinnurek
ur að ræða. Þar eru notaðar tegundir, sem c|ve^
mjög stutt í ferskvatni, en jafnframt er verið a
þróa hafbeit með laxategundir, sem likjast Atlu11
hafslaxi, hvað lífsferil varðar. ^
Hinar öru framfarir í þessum málum erle11^
hafa að vonum vakið mikinn áhuga hér á landi,
hafa sumir álitið, að okkur væri ekkert að vanb11
aði að feta beint í fótspor Norðmanna. Reyu:
sia11
hefur þó sýnt, að aðstæður hérlendis bjóða
upp á beina eftirlíkingu norskra eldisaðferða og
_ _ _
sérhönnun á aðferðum, sem henta við ísle»s
aðstæður, er nauðsynleg. -j,
í eftirfarandi erindi mun ég reyna að gera gr ■
fyrir helstu laxeldisaðferðum, sem að mínu n1 ^
koma til greina við íslenskar aðstæður, og P .f
unarmöguleika þeirra, einkum hvað s,ie.(3
stóraukna framleiðslu á laxi hérlendis. Spjall Pe
er beint framhald greinar um sama efni sem b'r
í 17. tölublaði Freys 1980.
Helstu aðferðir
Þegar rætt er um laxeldi sem framtíðaratvi
nnu'
144 — ÆGIR