Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1982, Page 64

Ægir - 01.03.1982, Page 64
miðunum og fyrri hluta mánaðarins var veiðisvæðið sem fyrr á Jan Mayen svæðinu og nyrst fékkst veiði á svæði 1110 NV af Jan Mayen, en þaðan var ca. 300 sml. sigling til Raufarhafnar. Hinn 15. sept. fannst loðna á svæðinu úti af Vestfjörðum (svæði 676) um 75 sml. VNV af Straumnesi. Næstu daga fjölgaði skipunum á þessu svæði enda fékkst þar góður afli. Besti veiðidagurinn var mánudagurinn 28. sept., en þá fengu 26 skip fullfermi á þessum slóðum. í lok mánaðarins höfðu 32 skip fengið afla og þá var heildaraflinn frá vertíðarbyrjun samtals um 99.488 tonn. Loðnugangan gekk nú hægt NA með landinu og um miðjan október var hún komin á svæði 772 eða um 70 sml. N af Horni. Góð veiði varð á þessum slóðum og skipin fengið oftast fullfermi. Besti veiðidagur mánaðarins var 22. október en þá fengu 26 skip samtals um 17 þús. tonn. Segja má að mjög góð veiði hafi verið frá því þessi loðnuganga fannst og til mánaðamóta, en þá var gangan skammt norðan við Kolbeinsey. í lok október höfðu 46 skip fengið afla og samtals varð mánaðaraflinn 149.269 tonn og heildaraflinn frá því veiðar hófust samtals 248.757 tonn. Fyrri hluta nóvember var mjög góð tíð og góð veiði alla daga. Loðnugangan hélt áfram austur- göngu sinni og um miðjan mánuðinn var hún um 50 sml. norður af Sléttu (svæði 716-715). Um miðjan mánuðinn kom rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson, leiðangursstjóri Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur, úr rannsóknar- leiðangri um loðnusvæðin. Þá var kunngjört að samkvæmt mælingum rannsóknarmanna væri stærð hrygningarstofnsins nú aðeins um 325 þús. tonn og var lagt til af fiskifræðingum að loðnuveiðarnar yrðu stöðvaðar strax. Ekki voru allir sammála fiskifræðingunum um niðurstöður mælingana, eins og greinilega kom í ljós í fjölmiðlum dagana á eftir. M.a. hélt einn er mótmælti niðurstöðum mælinga fiskifræð- inganna, að nóg væri af loðnu í sjónum, eða allt að 3 milljónum tonna, svo ástæðulaust væri að stöðva veiðarnar. Eftir mikil fundarhöld með Steingrimi Hermannssyni sjávarútvegsráðherra, fiskifræðingum og hagsmunaaðiljum, var ákveðið að farinn yrði annar rannsóknarleiðangur, til að sannprófa fyrri niðurstöður. Áfram hélst hin góða veiði út mánuðinn og i mánaðarlok höfðu 13 skip alveg fyllt kvóta sini' oi hætt veiðum. Heldur hafði loðnugangan hÆB1.' ferð sinni austur með landinu og um mánaðam0 ^ var hún á svæði 713 eða um 50 sml. NA Langanesi. í lok nóvember hafði 51 skip fellf - afla og mánaðaraflinn varð samtals um 192- tonn og heildaraflinn var þá orðinn um 441.5 tonn frá því veiðar hófust. . .j Um mánaðamótin kom svo rannsóknarskiP Bjarni Sæmundsson úr seinni leiðangri sínum loðnusvæðin. Þrátt fyrir góð leitarskilyrði fal1^ ekki meiri loðna en fyrri mælingar höfðu sýu1; samkvæmt mælingum í seinni leiðangrinum 10, fiskifræðingar stærð hrygningarstofnsins a°e gí, 240 þús. tonn. Mismunur á þessari niðurstöðu þeirri fyrri samsvarar veiðinni milli rnælingm111^ Að fengnum þessum niðurstöðum hii'11 sjávarútvegsráðherra að stöðva veiðarnar, og 2. des. gaf hann út svohljóðandi reglugerð 0 645): ,,Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 2. gr. regluger nr. 309/1981, eru allar loðnuveiðar bam'a frá kl. 12.00 á hádegi 6. desember 1981» 11 annað verður ákveðið. Loðnuskipum þeim, sem við birtingu regluSe j ar þessarar hafa ekki aflað 50% °f aflamagni, sem þeim var úthlutað í L infr' j gr. reglugerðar nr. 309/1981, er þó heimi'1 Grindvíkingur GK 606. Svanur RE 45. Breki VE 61. — ^ Friðþjófur. 168 —ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.