Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1982, Síða 22

Ægir - 01.11.1982, Síða 22
Nýlega var skýrt frá því í Bretlandi að breska fiskeldisfyrirtækið Golden Sea Produce sé nú að byggja eldisstöð sem muni framleiða um 100 tonn af sandhverfu árlega. Það hefur kostað mikla vinnu og ekki reynst auðvelt að skapa eldistækni, sem gerir það mögulegt að framleiða sandhverfu á hagkvæman hátt. Þegar á árinu 1970 hóf Golden Sea Produce fyrirtækið tilraunir með eldi flatfiska, einkum sól- flúru (Solea Solea), en áður hafði Fiskimálastofn- unin breska (White Fish Authority) gert tilraun með eldi sólflúru og fleiri tegundir flatfiska, eða allt frá árinu 1965. Á árinu 1973 hófu Fiskimála- stofnunin breska og Golden Sea fyrirtækið sam- vinnu um framleiðslu sólflúru. Ekki tókst að gera þá framleiðslu hagkvæma. Erfiðleikarnir voru einkum fólgnir í að eldistæknin var ekki nægilega þróuð í sambandi við framleiðslu smáseiða. Goldan Sea fyrirtækið hætti nú tilraunum með eldi sólflúru, einbeitti sér þess í stað að eldi sand- hverfu. Nú er eldistæknin við framleiðslu sandhverfu- seiða það þróuð, að hægt er að framleiða sand- hverfuseiði á öruggan og ekki allt of kostnaðar- saman hátt. Tilraunir með eldi annarra flatfiskteg- unda hafa einnig lofað góðu. Framleiðsla Golden Sea fyrirtækisins er tvískipt. Annarsvegar er framleiðsla smáseiða sem fer fram í eldisstöðinni við Lock Creran. Hins vegar er frameldi seiðanna i markaðsstærð sem fer fram í kælivatni frá kjarnorkuverinu í Hunterstone á vesturströnd Skotlands. Golden Sea fyrirtækið hefur selt sandhverfuhrogn og -seiði til margra Ev- rópulanda, en áformað er að hefja tilraunael 1 með sandhverfu m.a. í Þýzkalandi, Frakklandii Ástralíu og Danmörku. Erfiðleikar við framleiðslu sandhverfuseiða efU einkum bundnir við að þegar hrognin klekjast era sandhverfulirfurnar ekki nema 3mm að stær Fæðan verður því að vera mjög smá fyrir lirfurnar. og þróa þurfti aðferðir til að framleiða rétta fseðu- í byrjun var fóðrið örsmáir einfruma þörungar, Þa hjóldýr og síðan lirfur saltrækjunnar (Artermial- Eftir 3ja mánaða eldi í 20°C hita, hafa sandhverfu seiðin náð þeirri stærð að hægt er að nota venjU' legt fiskafóður þ.e.a.s. þurrfóður og blautfóður- Þegar sandhverfuseiðin hafa náð 0,5-2,0 g þyng er hægt að flytja þau milli staða. í Hunterstone eldisstöðinni hefur tekið 30-36 mánuði að ala san hverfu í 2-3 kg. stærð. Verð á sandhverfu er mjö® hátt um þessar mundir, og hafa fengist allt að 2 kr. fyrir kg. Sandhverfa (Psetta maxiam). 582 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.