Ægir - 01.11.1982, Blaðsíða 30
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur:
Alþjóðaþing haffræðinga
í Halifax, Nýja Skotlandi,
2.—13. ágúst 1982
Inngangur
Dagana 2.—13. ágúst
1982 var haldin ráðstefna
í haffræðum í Halifax á
Nýja Skotlandi, Kanada.
Ráðstefnan eða þingið
var svonefnt „Joint
Oceanographic Assemb-
ly“ (JOA). Þing þessi eru
haldin á sex ára fresti,
síðast var það haldið
1976 í Edinborg í Skot-
landi. Þar vorum við þrír saman haffræðingarnir
frá íslandi, Unnsteinn Stefánsson, prófessor, J°n
Ólafsson, hafefnafræðingur, og sá sem þetta skn
ar. Nú var ég einn héðan.
Fjöldi alþjóðastofnana og vísindanefnda stan
að þessum þingum, m.a. Efnahags- og menning^
málastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESC
ásamt Hafmálastofnun hennar (IOC) og alþj°
legri nefnd vísindamanna sem gengur undir heitinu
SCOR (Scientific Committee on OceanograpnlC
Research). Forseti AlþjóðahafrannsóknaráðsinS
(ICES) var ásamt öðrum í undirbúningsnefnd ra
stefnunnar.
/. mynd. Bedford hafrannsóknastofnunin, Dartmouth, Nova Scotia, Kanada.
590 — ÆGIR